Dubito, ergo cogito, ergo sum

Herðubreið á nýju ári

Ný Herðubreið er að rata í póstkassa áskrifenda nú beggja vegna helgarinnar. Í gær komu greinarbútarnir inn á herdubreid.is auk leiðarans sem við af okkar óviðjafnanlegu elskulegheitum birtum nú í heild.

Af forsíðunni að dæma mætti ætla að ritstjóri Morgunblaðsins kæmi eitthvað við sögu?

Ég hef ekkert hugmyndaflug …

Skemmtilegt: Ég hef ekkert hugmyndaflug …

Nördaviðbót við Sjónvarp Símans

Í dag var sett í loftið smá fríkeypis nördaviðbót í Sjónvarpi Símans sem gerir öllum notendum kleift að horfa á nýjustu innlendu þætti RÚV, s.s. Silfur Egils, Kiljuna og Spaugstofuna þegar þeim hentar (e. on demand.)

Við höfum verið með flesta innlenda þætti Skjás Eins og bætum nú við bróðurpartinum af dagskrárgerð RÚV. Sem makka-notandi hefur ruv.is valdið mér nokkru hugarangri, eins góð og meiningin er nú á bak dagskrárupptökuna þar, hefur hún verið nærri ónýt í mínu OSX nærumhverfi. Þannig að nú hafa makka- og linuxnördar sjónvarpsþróunar komið til móts við þá sem vilja horfa á sjónvarpsupptökur RÚV í sjónvarpinu sínu -JEI!

Það er því einmanna pepper sem situr nú á mánudagskvöldi og horfir á nokkra gamla silfursþætti og kiljur meðan frúin er í verkefnavinnu í gömlu höllinni hans Styrmis.

PjéEss það þarf að endurræsa lykilinn til að fá nörda-viðbótina!

Samkeppni á fjölmiðlamarkaði

“Auðvitað getur hæstvist Alþingi ekki staðið undir því til lengdar að láta misvitra túlkunarmenn velja það og hafna sem þingmenn eru að fjalla um,” sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu á Alþingi í gær þar sem hann lýsti þeirri skoðun að Alþingi ætti sjálft að stunda sjónvarpsdagskrárgerð með fréttum og umræðum um þingstörfin.
(heimild: eyjan.is)

Þetta er áhugavert innlegg hjá Árna. Ég sé fyrir mér að þessi ríkisrekna sjónvarps- eða útvarpsstöð gæti jafnvel flutt fréttir af fleiru en störfum Alþingis. Hún gæti sagt bæði innlendar- og erlendar fréttir. Við gætum jafnvel hugsað okkur einhverskonar fréttastofu?

Sjálfsagt væri bezt að mynda einhverskonar stofnun um fjölmiðlareksturinn? En hvað ætti að kalla slíka stöð? Ríkisútvarpið væri nokkuð smellið nafn á gripinn og hægt væri að nefna fréttstofuna þá Fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Já! Það er gott að Árni sé aftur kominn á þing. Sjálfstæðismenn allra landa sameinist.

PS ég sé síðan fyrir mér að eftir nokkur ár væri hægt að OHF-væða þetta svokallaða Ríkisútvarp, svo djöfuls kommúnistarnir komist ekki með puttana í reksturinn.

Palisander á Twitter segir: