Monthly Archive for October, 2000

…og aftur af ritdeilum

Ég hef ekki haft mikinn tíma til að lesa vefleiðara annara og fylgjast með þessu skemmtilega og örtvaxandi samfélagi bloggra á Íslandi. Þó koma upp málefnalegar ritdeilur annað slagið sem gaman er að fylgjast með. Um daginn minntist ég á menn sem deildu um upphafsmenn gluggakerfisins en nú eru það forsetakosningarnar í BNA sem hafa hleypt af stað skemmtilegum skoðanaskiptum milli Repúblikanans Ágústar annarsvegar og nokkura ágætra vinstri manna hinsvegar, s.s. Einars Arnar og Sigurðar Hólm.

Sjalladjöflar

Nei, nú er nóg komið. Í sama mánuði og Davíð Oddson og Geir H. Haaaarde státa sig fyrir framan þingheim og þjóðina alla af ,,stórkostlegasta hagnaði á ríkissjóði í manna minnum” koma fyrirsagnir á borð við þessa í DV í dag ,,Ekkert svigrúm til að fara að kröfum þeirra (kennara) segir formaður samninganefndar.” Guð minn góður, væri ekki nær að minnka aðeins hagnaðinn á ríkissjóð svo við getum borgað því fólki sem er að mennta æskuna okkar mannsæmandi laun? Eða erum við orðin svo upptekin af því að lágmarka verðbólgu og auka hagvöxt að við erum hætt að gera okkur grein því sem máli skiptir í lífinu? í DV í dag kemur jafnframt fram að rúmlega 30% kaupaukningu þyrfti til kennara til að brúa bilið svo laun þeirra fylgi launaþróun annara háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Við erum ekki að tala um neina milljarða hérna! Viljum við greiða niður halla ríkissjóðs á næstu fimm árum og steypa menntakerfinu í glundroða eða getum við kannski beðið með greiða upp skuldir úr stjórnartíð Denna í 5-10 ár til viðbótar? Ríkisstjórn Davíðs Oddsonar er búin að standa sig sérdeilis vel í menntamálum! Háskólinn er í stórkostlegu fjársvelti og kennaraflótti þaðan er stórkostlegur. Nýjar úthlutunarreglur LÍN í tíð Björns Bjarna og Gunnars Birgis hafa gert námsmönnum æ erfiðara fyrir að stunda nám erlendis. Og nú eru framhaldsskólarnir búnir að fá sig fullsadda. Hvað næst? Ætlar ríkisstjórnin að halda árfam að slá ryki í augun á fólkinu með ræðum og ritum um hagvöxtinn? Hvað með mannauðinn?

Amnesty

Í gær sótti ég um aðild að Amnesty International á Íslandi. Ég vona að ég hafi svo einhvern tíma til að leggja baráttu þeirra lið. Á þessari síðu getur þú styrkt samtökin með millilandasímtölum þínum án þess að það kosti þig nokkuð aukalega.

Málízkur-ir-ar

Ég var á fundi áðan í vinnunni með manni sem talaði ekkert eitt ákveðið tungumál. Það er fyndið. Týpísk setning hjá honum gæti verið eitthvað á þessa leið: Ja man kann ekkert að gera with that sort of thing! Er hægt að segja að svona maður sletti? Annars er 1006 hPa yfir landinu þannig að ég er bara í góðu skápi, spáð hellings góðu veðri fyrir landsleikinn á morgun, heil gráða í plús, það er ekki hægt að biðja um það betra. Góðar stundir!