Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir Eldar Ástþórsson sem fjallar um ástandið í Palestínu/Ísrael frá öðrum sjónarhól en við eigum að venjast. Eldar sem er varaformaður samtakanna Ísland-Palestína og vill meina að fjölmiðlar hafi ekki fjallað um átök undafarinna mánuða á hlutlausan hátt. Greinin er vel skrifuð og ég mæli eindregið með lestri hennar … hún gæti opnað augu margra!
Monthly Archive for November, 2000

Ég sá Charlie’s Angels í gær. Hún er æðisleg. Aksjón mynd með þrem gellum sem reynir á engan hátt að höfða til vitsmunnagáfu áhorfandans, það er ekki hægt að biðja um betri afþreyingu! Ég hef ekkert neikvætt um þessa mynd að segja. Húrra englar!
Ég veit ekki með ykkur en stundum langar mig svo að vafra um á netinu án þess að mér detti nokkuð í hug til að skoða. Þegar sá hatturinn er á mér leik ég mér stundum að því að slá inn það sem mér þykir asnalegar adressur og sjá hvort þær séu til … niðurstöðurnar eru stundum soldið fyndnar -eins og þegar ég rakst á leitarvélina mamma, sem er reyndar mjög kúl. Annað sem ég hef rekið hausinn í er kukur.com sem er reyndar í eigu kukur enterprises í enskri þýðingu shit.com ég reyndar mæli ekki með þeirri síðu þar sem hún er klámfengin mjög og mikill peningur getur farið í vaskinn! Svo er það vefverslunin BadSite.com!!! Næst þegar ykkur leiðist þá er þetta svo sem ágætis dægradvöl! Með ævarandi von um að líf ykkar verði aldrei það leiðinlegt, kveðja jensi!
Fuck Fuck, fucking fuck, fuck, fuck … ég get ekki hægt að segja fuck og fucking fuck. Ég er að hlusta á nýja diskinn með Limp Bizkit sem tekur á þessum málefnum á mjög grípandi máta. Það er gaman að segja fuck og fucking fuck. Reyndar er ég ekki alveg að fara með rétt mál, þetta er meira svona f*** og f***ing f*** og nátturlega motherf***ing f***. Á einum stað plötunnar segir Durnst: and if I say f*** two more times thats 46 f***s in this f***ed up rhyme, hey!