Nú er ég kominn til úglanda, nánar tiltekið Washington DC, þar sem ég mun dveljast næstu 2-3 árin. Í dag tölti ég með Jónu kærustunni minni, Friðriki og Bjarna vinum mínum niður að Pensilvanía Breiðstræti þar sem við ætluðum að fylgjast með Innvígslu-skrúðgöngu Gjéorgs Tvöfaltwaff Bush. Í stað þess að sjá skrúðgöngu þá lentum við í mannþröng með fjöldamótmælendum … já ég hef aldrei séð jafn margar manneskjur samankomnar til að mótmæla jafn mörgum og ólíkum hlutum! Þarna var fólk að mótmæla viðskiptabanninu á Kúbu, Dauðarefsingunni, kosningu Bush, ekki kosningu Gore, Misnotkun á náttúruauðlindum Alaska osfrv. Ég ímynda mér að við höfum haft mun meira gaman af þessari “kröfugöngu” en að sjá Dubyah fara um í bílalest með mismerkilegu fólki. Annars þóttu mér kröfuspjöldin ansi skondin upp til hópa, t.d. “amBUSHed”, “Supreme Court 1 - America 0″ og “Not my president” annars voru mörg miklu betri en þetta en ég er með hrikalegt skammtímaminni! Svo hrópaði mannfólkið “Bush go home” og gáfu honum fuckmerki í stríðum straumum þegar bílalestin fór framhjá! Fólk var meira að segja búið að útbúa hanska á priki þar sem prikið gekk upp í gegn um miðfingur hanskans … þið skiljið hvert ég er að fara! Ég held ég hafi ekki rekist á eina manneskju í allri miðborg DC sem studdi nýsvarin forseta USA! Skrýtið?
Monthly Archive for January, 2001
Nú er ég að fara út í nám á laugardaginn og maður er á höttunum eftir tölvu (jensísk skilgreining á tölvu=Mac G4 turn amk 400mHz, 128MB RAM & 20GB diskur) Nú ef maður fer inn á apple.com þá er hægt að fá slíkan grip fyrir 1300 USD án skjás, skjárinn er síðan frá 500 USD! Ágætis verð fyrir svona grip? Ef ég síðan fer inn á síðu sem heitir því skemmtilega nafni Small Dog Electronics sér maður að þeir eru að selja álíka tölvu með 17″ skjá á 1399 USD! Gott verð fyrir svona tölvu? Jammm! En vandinn er þá þessi … á maður að hætta sér út í viðskipti við fyrirtæki sem selur apple tölvur og gæludýr á sama léni? Svar óskast!
Árið er nú rétt rúmlega viku gamalt og hefur mér fundist það einna helst einkennst af fjöldauppsögnum hjá netdeildum stórfyrirtækja á borð við J.P. Morgan sem hefur sagt upp rúmlega helmingi af starfsfólki netdeildar sinnar. Þeir segja ástæðu uppsagnanna vera erfiðleikar að ná í nýja kúna í gegn um netið. Nú svo er N.Y. Times Digital að segja upp 17% starfsfólks eða um 70 manns af svipuðum ástæðum og Morgan.
Góðvinir mínir @ The Counter hafa kunngjört mér að þriðjudagar séu vinsælustu dagarnir á heimasíðunni minni -þessari sem þú ert nú að skoða. Því sýnist mér ég vera knúinn til að blogga á þessum degi til eilífðar nóns. Ég hef mestmegnis lítið að segja í dag sem aðra daga og oftast er það sem hér er ritað ekkert nema ekkert, líkt og þessi setning sannar. Ég óska þó eftir smá aðstoð við íbúðarleit. Ef einhver vill leigja mér íbúð í miðbæ Washington DC á verðbilinu 600-800 USD á mánuði þá er vinsælt að hringja í síma 698 7755 eða senda mér ímeil takk svo mikið ég elsa ykkur öll (nei það á ekki að standa elska þarna)!