Ég var að gjóa augunum, hér áðan, til þáttarins MAD-tv sem er ágætis skopstæling á þeim stórgóða þætti, ´89 á Stöðinni … Í þættinum var verið að gera grín að heimska fíflinu sem tapaði forsetakosningunum og þ.a.l. er forseti núna.
Leikendur voru að furða sig á því að TwöfaltwafF buSh (TFS=Too Fucking Stupid) væri andvígur fóstureyðingum (eng. Pro Life).
Ég held satt best að segja að “TFS” átti sig ekki á því að hann sé að drepa fólk þegar hann sendir það í rafmagnsstólinn, “líkt og” mæðurnar sem hann er að berjast gegn! (ath. það sem er innan gæsalappa má túlka hvernig sem er!)
Monthly Archive for February, 2001
Eins og sönnum Íslendingi sæmir þá held ég áfram umfjöllun minni um verðrið. Í gær snjóaði í höfuðborginni, niðurfallið var svo rosalegt að uppistaðan var rumlega sentimeters lag af snjó yfir allri borginni! Þegar svona óveður geysir, skilja innfæddir ökukunnáttu sína eftir heima og taka sér það bersaleyfi að keyra eins og þeir séu allir á eiturlyfjum. Dæmi um þetta er 128 bíla árekstur á I-95 hraðbrautinni í útjaðri borgarinnar. Soldið smart!
Þessi ágæti Þjóðverji hefur gert ágætis síðu sem sýnir óumflýjanlegt hugmyndagjaldþrot Microsoft við hönnun á XP.
RIP
Microsoft!
Það er búið að vera mjög svo mikið skrítið veður hér í höfuðborginni síðustu daga og ég hef því samið þetta litla ljóð.
Jammm, í gær voru allir í kraftgöllum.
Og jammm, í dag voru allir í stuttbuxum.
Og já jammm, jammm!
Takk!