Monthly Archive for April, 2001

oh damn

… og ég sem var að vonast eftir því að kreml.is myndi vera einhverskonar politískur vefur en það var víst of mikil bjartsýni! Maður verður víst að sætta sig við greinar eins ,,Cindy þykir rass Jennifer of stór” og ,,Jóhanna (Sigurðardóttir) er Quake-fíkill!” Ákkúrat efni sem maður myndi æskja að væri á vefsetri sem ber nafnið Kreml.is!
Ég hef nú nýlega fest kaup á léninu Bessastaðir.is og mun innan skams fara að rita þar greinar um ekki nokkurn skapaðan hlut, fylgist með!

jensi gerist anarkisti og mótmælandi og …

Í tilefni af mótmælunum í Kúbekk og árásar Kópvíkinga á bandaríska sendiráðið á Laufásveginum, var augljóst að ég gat ekki lengur setið aðgerðalaus hjá. Ég lét því til skarar skríða í dag. Á leið minni heim úr skólanum rölti ég iðulega fram hjá Alþjóða-Gjaldeyrissjóðnum (IMF) og Alþjóða -bankanum/-kaffihúsinu (The World Bank Group / ógeðslega lókal djók).
Þetta eru mikil bákn og tákn kapítalisma og því fleygði ég tyggjóinu mínu í götuna og rauk í burtu. Sem betur fer var ég ekki gómaður og því mun ég sennilega halda þessum aðgerðum áfram næstu daga þar til sjónarmið mitt verður virt að vettugi. Það eru jú allir með það á heinu hverju ég er að mótmæla er það ekki annars? Alveg eins og það er alveg á hreinu hvað vakti fyrir þessum drengjum sem reyndu að kveikja í bandaríska sendiráðinu!

Soldið fyndið

Mér þykir það skondið að þegar leitarorðið David Oddson (án ísl. stafa) er slegið inn á AltaVista leitarvélinni kemur síða mín upp nr. 8 í results.

Er einhver að stríða mér?

Ég vil líka nota tækifærið og þakka þau fjölmörgu bréf sem hefðu hugsanlega geta borist mér vegna fyrirspurnar minnar um ímeilið hjá forsætisráðherranum.

Ha?

OK, ég er búinn að gera upp hug minn og hér kemur sleggjudómurinn, reyndar í spurningarformi … Er lifandi heilafruma sem starfar við bandaríska sendiráðið á Íslandi?

Sendiráði Jú Ess Ei var sendur smá Molotov kokteil á laugardaginn, allt gott og blessað með það og í kjölfarið kemur þessi frétt á vísi

Hert öryggisgæsla
Öryggisgæsla við bandaríska sendiráðið við Laufásveg í Reykjavík hefur verið hert í kjölfar þess að bensínsprengju var kastað að sendiráðinu síðustu nótt.

Þegar blaðamaður Fréttablaðsins átti leið hjá sendiráðinu á sjöunda tímanum voru þar staddir tveir öryggisverðir frá Securitas sem kröfðust þess að skilríkjum væri framvísað. Engar upplýsingar fengust um aukna öryggisgæslu á skrifstofu Securitas og var blaðamanni tjáð að upplýsingar um slíkt væru trúnaðarmál sem fyrirtækið gæfi ekki upp. Ekki hefur náðst í talsmann sendiráðsins vegna þessa

Hvaða rétt hafa fulltrúar sendiráðsins til að krefja menn um skilríki þegar gengið er Laufásveginn, auk þess hver myndi reyna að apa eftir aðgerðum Johnny National og félga, strax daginn eftir?

Hver leyfir svona framkomu … jú Frjálshyggjufasistaflokkurinn sem er búinn að vera við völd í allt of langan tíma.

í sumar ætla ég að standa við begjuna inn í götuna mína í Kópavoginum og krefja alla menn um skilríki sem vilja keyra þar í gegn. Maður getur aldrei verið of varkár, þetta er nú einusinni Kópavogurinn.

Ég held samt að ég hafi alveg jafn mikið vald til slíkra aðgerða og starfsmenn sendiráðsins eða fulltrúar þess?

En að endingu vil ég bara taka ofan fyrir Erpi og lærisveinum hans. Skál fyrir róttæklingum, heimurinn þarfnast ykkar!