Monthly Archive for June, 2001

Fanta skrýtið

Ég var að vafra um vefinn sem áður, þegar ég rakst á auglýsingu! þar sem verið var að bjóða 25% afslátt á Star Wars I, DVD útgáfu. Ég vissi ekki að hún væri komin út á DVD, jei frábært!
En þegar ég kom inn á síðuna var auglýstur útgáfudagur 16. október 2001! Hummm?

Ég tarf ekki sjúss, bara alla tessa laxa

Hvað er þá verið að auglýsa? Kaupið myndina núna og bíðið í hálft ár eftir að fá hana senda?

Er þetta ekki Lionsklúbburinn Kiddi?

nobody@nosubject … já kíkjum á það?

Sérdeilis afskaplega príðilega mikið er maður nú orðinn þreyttur á fólki því sem elskar fátt annað meira en að smita tölvur sínar með vírus. Ég held ég sé búinn að eyða hátt í viku í þessum mánuði við varnir gegn myrku öflunum. Mér er spurn, hvernig dettur fólki í hug að opna *.exe skrá í pósti sem er frá engum með ekkert subject og engan texta?

Stór stund í lífi smásálar

Já! Mér tókst það loksins, eftir tugi klósettferða án árangurs þá hefur mér loksins tekist það. Ég mun altaf muna þessa stund. Það átti sér stað rétt fyrir klukkan átta að staðartíma Garðheima á karlaklósetti því sem ætlað er fyrir bert starfsfólk.

Það er ekki annað hægt að segja en að sælustraumur hafi leikið um líkama minn (ásamt öðrum hlutum) þegar mér loksins tókst það. Hvað? Jú að klára róteisjón leikinn í GSM símanum mínum auðvitað!

Ég er búin að eiga þennan síma í rúmlega ár og hef tekið hann með mér í flestar klósett-ferðir á þeim tíma, en fyrst nú náði ég tindinum!

Skál fyrir því … og munið að þvo hendurnar þegar þið eruð búin!

Á púnktur.íslandi

Liðin er vika og gott betur síðan við Djóní komum heim frá ,,Vonda Veldinu”. Nú höfðum við ekki verið lengi í víking á mælikvarða … víkinga? Allavega, þá hefur nú samt margt breyst á þessum stutta tíma sem við erum búin að vera Erlendur.

Zum bæspíl gæddi ég mér á skyr.is í vikunni og las fréttablaðið, begge tú hlutir sem ekki voru til áður en ég fór út.

Síðan eru aðrir hlutir sem koma manni alltaf jafn mikið á óvart, í hvert skipti sem maður snýr aftur. Líkt og veðrið í gær, yndislegt. +1 gráða á selsíjuhhs og 800 vindstígen … jamm ógeð og jæja.