Það getur verið mikil heilsubót að vafra um netið, sérstaklega þegar maður rekst á síður eins og eyjar.net. Ég held að þetta sé með heilbrigðari síðum sem ég hef sótt í langan tíma. Það var þó aðallega þessi málsgrein sem mér fanst æði:
,,Samkvæmt síðustu skoðanakönnun þá stefnir í met Þjóðhátíð þetta árið. 86% ætla pottþétt að mæta og má því reikna með að um 240 þúsund manns ætli í dalinn og ef við notum sömu talningartækni og kirkjan við sínar útihátíðir þá má reikna með að um 240.000 manns sinnum 3 dagar = 720.000 manns eða um 258% þjóðarinnar ætli að mæta, sem verður að teljast nokkuð gott. Það er því um að gera að fara að drífa sig að panta. Herjólfur er nú þegar orðinn eða er að verða uppbókaður varðandi bíla í vikunni fyrir Þjóðhátíð.”
Monthly Archive for July, 2001
Ég veit ekki alveg afhverju mér finnst þessi mynd fyndin

… en ég meina hey!
,,Þegar standa öll járn á manni reynir maður ósjálfrátt að víkja sér undan og þetta er nú ekki alvarlegt.” Árni Johnsen.
Ég keyri stundum, í gær var ég að keyra í umferðinni, ásamt fleirri bílum. Einn þessara bíla stendur mér meira í minni en hinir. Það var vínrauði Pólóinn sem ég keyrði á eftir í gegn um allan Kópavog. Fyrir það fyrsta blikkaði hægra stefnuljósið allan tíman. Þetta var í sjálfu sér skondið, en fyndnara þó er að viðkomandi ökumaður gerði sig líklegan að begja TIL VINSTRI á hverjum gatnamótum en aldrei varð úr.
Fljótt sást að þetta afar furðulega ökulag orsakaðist af því að ökumaðurinn var einungis með annað lærið á stýrinu, eða svo held ég. Ökumaðurinn var upptekinn við þarfari hluti en stjórn ökutækisins, eins og að greiða sér, tala í síman, setja á sig varalit og baða höndunum út í loftið, líklega í takt við tónlist sem ómaði í umræddum sjálfrennireiðung.
Nú þegar við vorum loks komin á Reykjanesbrautina eftir að hafa lúsast allan Nýbýlaveginn á 30 km/klst var eins og nýju lífi hafi verið blásið í ökumanninn, því nú brunaði Pólóinn Reykjanesbrautina á 35 km/klst og nýtti sér óspart þær tvær akreinar sem hann hafði til umráða og svigaði fagurlega á milli þeirra.
Skömmu seinna þurfti ég að begja út af götunni og var þá samsíða Pólóinum á fráreininni og sá þá að ökumaðurinn æðislegi var fósbrúdurinn Braga, Helga Braga. Við þessa uppgvötvun gat ég ekki stillt mig og skellti uppúr og leiddi hugan að því að ég ætti kannski að skirfa um þetta á heimasíðunni minni! Hvaða heimskulegi endir var þetta?