Monthly Archive for August, 2001

Skandall

10% verðhækkun á appelsínusafa
Nýlega hækkaði verð á Tropicana appelsínusafa í Nýkaup úr 299 krónum í 329 krónur. Árni Ingvarsson, kaupmaður í Nýkaup, segir ástæðuna fyrir hækkuninni vera að safinn hafi verið á kynningarverði áður. “Við hófum að selja þessa tegund af safa í mars eftir að hún hafði verið ófáanleg í nokkra mánuði. Hún hefur verið á kynningarverði, 299 krónur, síðan þá en nú er hún hins vegar á venjulegu verði.” Hann segir Tropicana safann vera viðkvæma vöru sem endist stutt og þess vegna verði ákveðin afföll sem séu dýr.
heimild:mbl.is
…er þetta frétt?

Jensku

Ég er í ,,Creative Writing” (Búðu til rithönd) kúrs, þessa önnina sem felur í sér ritgerðarsmíð, yndislestur og dagbókagerð. Ég var að vellta því fyrir mér að hafa dagbókina mína á heimasíðunni og deila dagbókaraunum mínum með ykkur, mínum ástkæra lesendahóp!
Gallinn er sá að ,,bókin” verður rituð á ensku. Kannski er það kostur, ég veit það ekki! Þá getið þið allavega lesið Jens á ensku, eða Jensku!

Meira af skólavandrædum

Ég finn ekki heldur tölvustofu sem er með íslensku lyklaborði. Þannig að ég hef þurft að grípa til snilldartólsins í neyð.

Meira af skólavandrædum

Ég finn ekki heldur tölvustofu sem er með íslensku lyklaborði!!!

Þannig að ég hef þurft að grípa til snilldartólsins í neyð.