Monthly Archive for October, 2001

Heimasíður bandarískra þingmanna

Mér til dægradvalar fór ég að skoða heimasíður bandarískra þingmanna. Það er skemmtileg dægradvöl. Það kom mér reyndar á óvart að hver einasti þingmaður (alls 535) er með heimasíðu. Í fulltrúadeildinni er skemmtilegt að skoða muninn á heimasíðu aðal repúblikanans og -demókratans. Samkvæmt þessari mjög svo óvísindalegu rannsókn virðast demókratinn ögn smekklegri.

En fjörið hefst þó í öldungadeildinni. Heimasíða Hillary einkennist af nýrri og framsækinni tækni í heimasíðugerð, svokallaðri allir-tenglar-og-myndir-í þoku-tækni. Fyrrverandi varaforsetaefni Gore, Joe Lieberman er einnig með framsækna og skemmtilega forsíðu þar sem notandanum er boðið upp á að velja á milli ,,Standard Version” þ.e. fyrir notendur með ,,Netscape 3.0 or lower” og síðan ,,High-End Version” fyrir framsækna notendur með ,,Netscape 4.0 or higher.” Það er greinilegt að helstu fylgjendur Lieberman hafa ekki farið á netið síðan 1996.

Síðan er það heimasíða John Maccain sem var í harðri baráttu við Gogga um forsetnatilnefningu Repúblikana. Síðan hans er algjört bjútí. Mér datt í hug að gerast lærlingur (e. Lewinsky) hjá honum í vetur sem vefjari? Maður getur varla gert verr?

Næst kíkti ég á heimasíðu Ted Kennedy. Hún var æði, tölvan krassaði þrisvar áður ég gat séð öll 30 applettin, mjög svo grúví. Ég vill samt var fólk við því að heimsækja hana og þ.a.l. vill ég ekki tengja hana.

Besta síðan var eiginlega heimasíða Strom Thurmond sem er 98 ára gamall þingmaður frá Suður Karólínu, merkilegt nokk! Thurmond rokkar!

Enn með óráði!

ÓmÍGoD, ég hef ekki ennþá náð að sofna. Svefngalsinn er nú kominn á mjög svo alvarlegt (fyndið) stig. Það er samt ekki langt í að geðveikin brjótist fram með fullu fjöri.

Og mér gengur ekkert að ná beinni útsendingu frá tónleikum Sinfóníunnar og Quarashi @ ruv.is!

Hey var ég búinn að segja ykkur, ég er búinn að breyta um nafn. Framvegis (sennilega út vikuna) verð ég einungis þekktur undir nafninu P-Pabbi. The P the pabbí the da the dúddí.

Hvað er ég að gera!

Ég hef ekki hugmynd hvað ég er að gera fyrir framan þetta tölvuapparat ákkúrat þessa stundina. Nú er ég búin að vera á fótum síðan klukkan snemma í gærmorgun, það eru voða margir tímar, ég held rúmlega 30.

  • Ég var að skila ritgerð.
  • Ég sé skjáinn í móðu.
  • Það er líka margt sem ég les á skjánum sem ég skil ekki.
  • Ég skil ekki afhverju skólinn minn var að senda mér 57 eintök af sama emailinu.
  • Ég skil ekki afhverju US Postal Service var að senda mér leiðbeiningar um meðferð miltisbrandsbréfa.
  • Ég skil ekki afhverju kanar eru að sprengja Afganistan, nú segir Rumsfeld að þeir muni sennilega aldrei ná Bin Laden.

Annars var ég að skrifa ritgerð. Já ég var víst búinn að nefna það. Hún var voða skemmtileg þangað til ég var búinn að vaka of lengi, þá fór hún eitthvað svona niðrávið. Ég var að skrifa um hvernig bandaríska þingið hagar sér í samskiptum við aðrar stofnanir, eða eitthvað svoleiðis, svaka spennandi, ég veit ekki einusinni sjálfur hvað ég var að skrifa.

Mér fannst bara sniðugt að 65-75% af heildar fjárveitingu bandarísku ríkisstjórnarinnar fer til varnarmálaráðuneytisins, og önnur 5-10% fara óbeint til þess í gegn um aðrar stofnanir, er ég kominn yfir 100%? Er það skrýtið að þeir séu svona stríðsglaðir?

Stjórnarmenn í Pentagoninu verða nú einhvernvegin að réttlæta þessa svívirðilegu peninga sem streyma til þeirra. Ég er farinn að halda að þeir séu að sprenga í Afganistan bara svona til að halda skref sínum af ríkiskökunni. Þetta var soldið löng málsgrein, einhverjar prósentur gætu verið rangar! Maður en samt ennþá laus við miltisbrand. Held ég fari barað sofa.

Myndir

Nú hef ég loksins drattast til að setja inn eitthvað af myndum á síðuna. Myndirnar tegja sig aftur til sumarsins 2000 til dagsins í dag.
Góða skemmtun!

Smellið hér til að sjá myndirnar