Monthly Archive for December, 2001

Og gleðilegt ár elsku dúllan mín!

Þá er það næstumþví búið, 2001. Fyrst kemur S og síðast kemur A. Náttúrlega ef maður er með þetta allt í réttu viðhengi. En fyrst kemur S og síðast kemur A.

Ha ha ha ha ha ha ha/
Hvað byrjar á S og endar á A/
Hver presenterar aðeins það feitasta/
Viltu reyna hvað? en ekki gleyma/
hvað byrjar á S og endar á A/

Ha ha ha ha ha ha ha/

Geðlilegt ár elsku dúllan mín!

On-ðí-kleik.is

Þetta er hér ritað -að ég held- til þess eins að minna sjálfan mig á það að ég er nú kominn til Íslands. Við komum heim á fimmtudagsmorgun og höfum ekki enn séð dagsbirtu -voða kósí?

Á fimmtudag sváfum við fram að mjaltatíma þeim síðari og fórum svo á stjá um kveldið, hittum hlíðarhjallagengið og vinaskaran á öðru af tveim félagsheimilum okkar við Klapparstíg. Í gær fórum við svo á jólahlaðborð í Perlunni með tengdafólkinu.

Það er gaman á hlaðborðum …úff!

Á heimleið

Jei! Bún-í prófum! Í dag erum við Jóna svo að fara heim til púnktur Íslands. Frikki og Telma eru líka að fara í dag, þannig að það verður bara stuð í vélinni -þaggi? Sérstaklega þegar maður er búinn að vera á fótum í 25 klst …and counting!

Þökk sé pabba þurfum við ekki að dröslast í metro upp á völl. Skál fyrir Navigeitordnum!

Ísland, gamla Ísland …

Kvikmyndagagnrýni Janusar: Vonbrigði á vonbrigði ofan!

Þar kom að því, við Jóna fórum í gær að sjá litla galdrastrákinn, Harry Potter, á hvíta tjaldinu. Og þar sem við höfðum nú lesið bókina og heyrt alla í kring um okkur hrósa myndinni vorum við viss um að hún myndi valda okkur svakalegum vonbrigðum. Því fórum af stað með engar væntingar -sem var eins gott!

Í stuttu máli urðum við fyrir nettu áfalli. Mikið rosalega er þetta léleg mynd. Og nú líður mér soldið eins og stráknum sem benti á að keisarinn væri ekki í neinum fötum. En þessi mynd er langt frá því að ná spennu og persónusköpun bókarinnar sem er kannski ekki furða. Samt, ef maður dæmir handritið eitt og sér, utan bókarinnar þá er það ennþá svakalega slakt. Soldið furðulegt því höfundur bókarinnar er skráður fyrir handritinu? Seiseijú mikil óskup!

í bókinni er uppeldi Harry að mörgu leyti eins og Dickens ævintýri og maður hefur mikla samúð- og þjáist með honum. Í myndinni er þessi hluti (sem er jú nokkurskonar inngangur og grundvöllur sögunnar) gerður í miklu flýti og ég fann enga samúð með Harry á hvíta tjaldinu, né gladdist ég eitthvað stórkostlega er draumar hans rættust.

Persónulegt og mjög svo ófræðilegt mat mitt er síðan að myndin sé illa leikstýrð og illa leikin, leikararnir náðu yfir höfuð engum tökum á litríkum persónum bókarinnar. Leikarinn sem lék Ron, besta vin Harry stóð upp úr en Harry sjálfur var frekar flatur auk Hagrid og Snape sem voru alveg utan gátta. Síðan fundust mér tæknibrellurnar á köflum grátlegar, þó sérstaklega fannst mér Quidditch-keppin bagaleg. Tölvugerðu Quidditch-leikmennirnir voru svo gervilegir að mér leið eins og ég væri allt í einu dottinn inn í Play Station leik.

Dæs!

Kvikmyndagagnrýni Janusar gefur þessari mynd: 1 og 1/2 stjörnu fyrir það eitt að fjalla um Harry Potter.