Hér er ég, ég er til! Hef verið annarshugar síðustu dægur! Við Jóna erum búin að vera mikið á stjá og því hefur heimamundurinn verið vanræktur
Kvikmyndagagnrýni Janusar: 2 góðar frá Hollywood-vélinni!
Um síðustu helgi brugðum við okkur í biffen, sáum The Royal Tenenbaums. Í grófum dráttum er myndin ein allra best heppnaða kómíska-fjölskyldu-drama sem ég hef séð -allavega um langt skeið.
Nú veit ég ekkert á hvaða róli þessi mynd er heima á Íslandi (þ.e. hvort hún sé í bíó eða væntanleg eða ???), og spara ykkur því fyrirlesturinn um aðalleikara og annan óþarfa -til þess var linkurinn gerður
Það er með ólíkindum langt síðan maður hefur farið í bíó án þess að verða fyrir vonbrigðum og því þótti mér ærin ástæða til þess að benda á þessa mynd, skál fyrir Tanenbaum-fjölskyldunni! Hún slær út flest það hismi sem ég hef verið að sóa aurum mínum í síðustu misseri, s.s. Harry Potter!
Rauða Millan
Á mánudag leigðum við síðan Moulin Rouge, alveg sjúklega gott söngleikja-drama! Ekki það að mér þyki gaman að vera litli fiskurinn í stóru tjörninni en ég verð nú samt að benda á góðan leik augnfagra-ástralans og starwars-skotans!
Ég hef ekki séð svona góðan söngleik á filmu, síðan West Side Story! Aðallega þótti mér þó tónlistarnotkunin eða tónlistarblöndunnin skemmtileg.
Skál fyrir Moulin Rouge! Tvær góðar myndir í röð! Ég veit ekki hvað er að gerast í Hollywood?
Nóg af drama í bili!