Monthly Archive for February, 2002

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt – A.L.M.E.N.

Í kvöld varð á vegi mínum sögufyrirlestur um Seinni Heimsstyrjöldina (WWII eða SH?) Afskaplega intresant og Jensi glósaði á milljón. Nú veit ég ekki hvort ég sé í minnihluta en ég er einn þeirra sem skammstafa alveg óheyrilega er ég glósa í fyrirlestrum.

Og að einhverri óskiljanlegri ástæðu er ég búin að vera fastur í heimspekilegum vangaveltum um skammstafanir síðan ég sat sögutímann. Einn af aðalleikurum SH er
Franklin Delano Roosevelt, fyrrum Bandaríkjaforseti. Oft nefndur FDR og það heiti ber hann í glósubókum Jensa.

Aukinheldur virðist það móðins í Bandaríkjunum að kalla menn skammstöfunum ef þeir bera þrjú nöfn: FDR, JFK, MLK osfrv.

Þá fór ég að spá afhverju tveggja-stafa-ekki-kanar séu sjaldan skammstafaðir í málinu og ég held ég sé kominn með viðhlýtandi skýringu.

Leiðtogi Breta í SH hét fyrir mestan part Winston Churchill –eða WC (klósettið?) þ.a.l. tregða Breta í skammstöfunum –eða hvað?

Síðan má ekki gleyma Jósef Stalín eða JS (Jens Sigurðsson?) Og hvert mannsbarn sér að það gengur ekki –gengur það?

Jim Traficant

Ég er að horfa á ansi skemmtilega fréttaskýringu um Jim Traficant á CNN. Traficant þessi situr í Fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir 17. svæði Ohio-fylkis!

Um þessar mundir er kallinn einhverjum smá útistöðum við lögin. Hann er þó hvergi banginn og ver sig sjálfur af miklum mætti. Fréttaskýringin hefur þó að mestu fjallað um þingmensku Traficant. Hann er einna helst þekktur fyrir langar ræður fyrir tómum þingsal sem fjalla, oftar en ekki, um einhverskonar samsæri Bandaríkjamanna gegn sjálfum sér! Traficant situr á þingi sem fulltrúi Demókrata en greiðir iðulega atkvæði með Repúblikönum!

Hann gengur augljóslega ekki heill til skógar, en hefur þó ótvírætt skemmtannagildi -nema þá að svo óheppilega vilji til að hann sé fulltrúi þinn í þinginu. Traficant er fulltrúi Youngstown í Ohio sem er miður skemmtilegt draugabæli, áður þekkt fyrir stálframleiðslu.

Ég mæli eindregið með heimasíðu Traficant. Hún er æði og ber vott um sálarástand þingmansins!

Vert er að benda sérstaklega á Beam Me Up! Og heimasíðu Youngstown! Jú gotta lov it beibí!

Gleðilegan Konudag!

Mig langar að óska öllum konum í heiminum gleðilegs konudags, þó sérstaklega konunni minni.

Pá-fer-vokk tú ðí sekkond páver

Í dag hélt heilsuátakið innreið sína á ný með 4 klukkustunda göngutúr frá íbúðinni upp að Læbrarí off Kongress (fyrir aftan þinghúsið) þaðan yfir allt mollið til Lincoln og aftur heim. Samkvæmt mapquest var göngutúrinn minn hátt í 15 mílur.

Upprunalegur tilgangur reisunnar var að útvega mér bókasafnskorti í þessu bókasafni þingsins. Bókasafn þingsins er soldið stórt. Bókasafnskortið mitt er ekki eins stórt en það er svo sum allt í lagi því myndin af mér er svo hrikaleg.

En hápunktur ferðarinnar kom þegar ég hafði gengið frá íbúðinni niður að Goggastöðum og hafði munað að telja allar kirkjurnar sem eru á 16. stræti! Þær eru 11. Það er mikið. Mig hefur alltaf langað að vita hvað þær eru margar. Þær eru margar. Þær eru 11. Það er mikið.

Þið haldið kannski að mér leiðist? Það er bara einfaldlega rangt. En á morgun ætla ég mér stóra hluti, jafnvel að maður skelli ljósleiðara upp í sumarbústað? …svona gera menn ekki!