Blogga nú endurnærður eftir fimm góða daga í sumarbústaðnum með Jónu. Mestmegnis lágum við í leti og nutum matar í miklu mæli
Við gerðum okkur þó dagamun með bíltúrum um Suðurlandið. Bústaðurinn er við Álftavatn við fætur Ingólfsfjalls. Á þriðjudag keyrðum við meðfram Eyjafjöllum inn að Vík. Við reyndum að komast út að Dyrhólaey en að endingu þurftum við að lúta í læra haldi fyrir Veturkonungi, við hefðum kannski meikað það á jeppa?
Vík er mjög skondinn staður. Bæjarstæðið er mjög fallegt en bæjarbúar vanfundnir. Ég minnist einungis tveggja bæjarbúa, pylsusalans og kjarvalskonunnar. Pylsusalinn í sjoppunni var vinalegur og gerði bestu pylsu sem ég hef nokkurntíma fegið á Vík. Karvalskonan var ekki eins vinaleg. Hún var grimm. Mér þykir KjarVal fyndið nafn á búð! KjarVal hefur lagt undir sig flesta verslun á Suðurlandi.
Á miðvikudag fórum við aftur í smápleisa-leik og keyrðum inn að Þorlákshöfn en snérum þó við á bæjarmörkum sökum óheyrilegs fnyks.
Þá skoppuðum við inn á Eyrarbakka, sem lyktar miklu betur. Þar eru húsin kósí og greinilega haldið vel við. Eyrarbakki væri ákjósanlegur staður fyrir sumarbústað ef Litla-Hraun gnæfði ekki þarna yfir annari byggð. Ég held að maður sjái ,,hraunið” frá öllum stöðum í bænum -spúkí!
Jæja, ætli maður verði ekki að fara að halda áfram að mála …svo íbúðin verði einhvertíma tilbúin!
Jei! Æm on ðí kleik, beibí! Ég kom heim í gærmorgun við mikinn fögnuð fjölmiðla og nærstaddra veðurguða. Fróðir menn telja að veðrið hafi ekki verið svona gott á Íslandi síðan ég var hér síðast. Í morgun hringdi svo Davíð í mig og bað mig að vera kyrr á landinu um óákveðinn tíma, það væri einfaldlega í þágu þjóðarinnar.
Ég sagðist myndi skoða málið, en setti sem skilyrði sömu launakröfur og Þórarinn V -mér fannst það sanngjarnt að fá jafn mikinn pening og hann, því við erum jú báðir að óþarfir og þ.a.l. dýrir? Og ekki orð um það meir.
Annars verða næstu dagar helgaðir nýju íbúðinni í kjallaranum -vonandi tekst okkur að flytja inn í vikunnni. Jóna er búin að vera svka dugleg síðustu vikur; á fullu að mála, sauma gardínur ofl. Þetta fer að verða alveg svakalega fínt.
Ég verð hér á Íslandi til 1. apríl (alltí-plati?), fer út í rúmlega mánuð og sný aftur um miðjan maí og verð þá í þrjá mánuði -mark jor kalanders!
Ég var að lesa ansi skondinn pistil á strikinu eftir HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON -annar frá hægri hér að ofan! Í greininni heldur Hannes ekki vatni yfir lágum sköttum Jóns Ólafssonar.
Er þetta ekki hinn sami Hannes hefur skrifað lærðar greinar og heilar bækur um frjálshyggju, minnkun ríkisvaldsins og lækkun skatta?
Mér þykja ofsóknir Hannesar á hendur Jóni orðnar óhóflegar og heldur hallærislegar. Persónulega, hef ég enga skoðun á Jóni og samskiptum hans við íslensk skattayfirvöld. Bæði hef ég engan áhuga á sköttum Jóns og mér þykir það heldur ekki koma mér við. Kemur þetta okkur við?
Ég borga mína skatta og vona að þeir fari í eitthvað vitsamlegt, eins og stofnanir sem veita skattgreiðendum aðhald og eftirlit. Ef Jón er ekki að borga skattana sína, ættum við að vera skoða starfsemi RSK eða endurskoða skattalöggjöfina.
Hannes skiptir svo um umræðuefni í miðri grein og fer að tala um samband Jóns við R-listann, Ingibjörgu Sólrúnu sérstaklega. Það er náttúrlega alveg hrikalegt að stjórnmálamenn eigi í sambandi við einkafyrirtæki. Sérstaklega, þegar maður les slíkt út úr pistli frá frjálshyggjupredikara.
Eiga D-menn kannski einkaréttinn á slíkum samböndum? Og svona fyrst Hannes er búinn að vekja athygli á þessu, þá væri gaman að opna bókhald stjórnmálaflokkanna, D-menn er eina stjórnmálaaflið sem hefur ekki opnað bókhald sitt. Afhverju ætli það sé?
Ég er að spá í að fara að lesa meira eftir Hannes. Kannski er hann ekki frjálshyggjumaður. Kannski er hann bara alltaf að mæla með aukningu ríkisvalds, ríkiseftirlits og ríkisstofnanna? Þetta er kannski bara allt misskilingur byggður á þeirri staðreynd að það hefur ekki nokkur sál lesið bækur Hannesar?
,, Ferðamálaskrifstofa ríkisstjórnar Ísraels [er að] efna til kynningar á skemmti- og sólarlandaferðum til landsins “ (heimild palestina.is)
Já þessi kynning fer fram á Grand Hótel í dag kl. 18:00. Í alvöru. Ég er ekki að plata. Kynning á skemmti- og sólarlandaferðum til Ísrael -alveg satt!
Hverjum langar ekki í ,,skemmtiferð” til Rammalah eða Jerúsalem og horfa upp á fjöldamorð? Hjómar vel, spurning um að afpanta ferðina til Benedorm, þ.e. ef þú ert þá með pantaða ferð til Bendorm í sumar!
Mig langar að endingu að benda á að Félagið Ísland-Palestína (sem ég held að ég sem meðlimur í?) er að efna til mótmæla fyrir framan Grand Hótel á meðan þessum skrípaleik stendur. Hvet alla til að fara og annaðhvort mótmæla eða kaupa sér miða?