,,Og hv. þm. Hjálmar Árnason var í þætti þar sem var yfirgengilega vitleysisleg umræða. Hann sýndi mikið þrek að vera í þættinum jafnlengi og hann var og talaði manna skynsamlegast í þættinum. Ég tel að allt of mikið sé úr orðum hans gert þó að hann segi í þætti af þessu tagi að hann geti skoðað alla hluti og alla þætti. Hvað er að því að þingmaður lýsi slíku yfir?”
-f.v forsætisráðherra DOddsson
Fyrst skal við verja greyið framsóknarmanninn (sem er náttúrlega með DO í liði) en svo skal berja á Samfylkingunni fyrir nákvæmlega sama hlut …og líka á svona málefnalegan hátt:
,,En Samfylkingin er eins og gamall aaaaafturhaldskommatittsflokkur og ætlar sér aldrei að verða stór og getur þess vegna ekki stutt verðugt verkefni eins og þetta.”
-f.v forsætisráðherra DOddsson
Þannig að Hjálmar Árnason má skoða hlutina frá öllum flötum og finna aðrar leiðir og lausnir …en ekki Samfylkingarþingmenn! Áhugavert.
Word
,,En Samfylkingin er eins og gamall aaaaafturhaldskommatittsflokkur og ætlar sér aldrei að verða stór og getur þess vegna ekki stutt verðugt verkefni eins og þetta.”
-Mr. Oddsson, á þingi í dag!
Hér kemur frumraun mín í textaþýðingum. Og að sjálfsögðu varð ég að byrja á uppáhalds laginu mínu:
Elskan einusinni enn
Ó elskan elskan
hvernig átti ég að vita
að ekki var allt með feldu.
Ó elskan, elskan
ég hefði ekki átt að sleppa þér
Og nú sé ég þig ekki lengur, yeah
Sýndu mér hvernig þú villt að þetta sé
Segðu mér elskan, því ég verð að fá að vita.
Viðlag:
Einvera mín er að drepa mig
og ég verð að viðurkenna að ég trúi enn.
Þegar ég er ekki með þér þá missi ég vitið
Gefðu mér merki.
Sláðu mig eitt sinn elskan.
Ó elskan, elskan,
Ástæða þess að ég andann ert þú
Dregur þú hefur blindað mig
Ó fallega dúlla
það er ekkert sem ég myndi ekki gera
Það er ekki eins og ég skipulagði það
Sýndu mér hvernig þú villt að þetta sé
Segðu mér elskan, því ég verð bara að fá að vita, ó afþví
- Viðlag -
Ó elskan, elskan hvernig átti ég að vita
Ó fallega dúlla, ég hefði ekki átt að láta þig fara
Ó elskan, elskan
ég hefði ekki átt að sleppa þér
Og nú sé ég þig ekki lengur, yeah
Sýndu mér hvernig þú villt að þetta sé
Segðu mér elskan, því ég verð að fá að vita.
Er ég einn um að finnast það merkilegt að höfundar Uppreisn frjálshyggjunnar, eru í dag allir ríkisstarfsmenn, utan einn -sem er framkvæmdastjóri stjórnmálaflokks!
- Jón Steinar Gunnlaugsson, ríkisstarfsmaður í Hæstarétt.
- Hannes Hólmsteinn, ríkisstarfsmaður í Háskóla Íslands auk þess að gera stórskemmtilega þætti fyrir ríkissjónvarpið.
- Halldór Blöndal, ríkisstarfsmaður á Alþingi Íslendinga.
- Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunnar sem ríkið á 50% hlut í.
- Geir Haarde, ríkisstarfsmaður á Alþingi Íslendinga.
- Þór Whitehead, ríkisstarfsmaður í Háskóla Íslands.
- Davíð Oddsson, ríkisstarfsmaður á Alþingi Íslendinga.
- Björn Bjarnason ríkisstarfsmaður á Alþingi Íslendinga.
- Þorsteinn Pálsson, ríkisstarfsmaður í ráðuneyti.
- Kjartan Gunnarsson sker sig úr þessum hópi sem framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Jafnframt þykir mér áhugavert að:
- Formaður SUS og
- 1. varaformaður SUS og
- 2. varaformaður SUS.
Séu einnig allir ríkisstarfsmenn.
Er það ekki Sjálfstæðisflokkurinn og þá helst SUS sem hefur verið að ,,berjast fyrir” minna ríkisvaldi?