Monthly Archive for December, 2004

Gleðileg jól

Gleðileg gleðileg jól jól, elsku kæru bestu elsku lesendur fjær og fjær. Takk fyrir lesturinn á árinu sem er að líða. Ég vona að ég hafi vakið með ykkur einhverja kátinu, hugsanlega vakið e-n til umhugsunar um e-ð eða e-n og vonandi pirrað e-a.

Guð blessi ykkur öll, sérstaklega trúleysingja og efahyggjufólk (eins og mig!) Eh, anywho´s! Vonandi massið þið þetta bara á nýju ári. Og náttúrlega líka um jólin, þið þurfið ekkert að bíða með að massa þetta fram á nýja árið. Nema náttúrlega að massinn sé þess eðlis? Nú ef massinn þolir enga bið þá mæli ég með því að massa þetta þá og þegar!

Have it grúbí grúbí grbú grúví in ðí massive xmas brainhouse.

Friður á jörð með skepnum, mönnum og Davíð.

Amen.

Bylting bleiku dúfunnar

Í amstri jólaamstursins voru hin amstursömu hjón Arnar og Helena á vegi mínum í kjallara bókaverslunar alþýðunnar á horni Laugarvegar og Vegamótastígs.

Sjálfsagt er slíkur amsturs-hittingur ekki svo mjög svo gjörla til frásögunnar færandi, hvað þá að frásagan rati á rafrænar síður stórblaðsins jenssigurdsson.com.

Allavega, þá voru þau hjón á miklu spani að kaupa eglu möppur í öllum regnbogans litum. Hví? Jú þau hjón hafa nöbbla fest kaup á kaffihúsi einu við Laugarvegin sem Bleika dúfan heitir. Ekki mun dúfan lengi vera bleik, því þau hjón hafa á prjónum að breyta staðnum í grasrótar grænku kaffihús.

Þannig urðu málavextir að þau hjón ásamt nokkrum öðrum góðborgurum stóðu fyrir stærðar flóamarkaði, basar, whatyoumacallit á menningarnótt, á horni grettisgötu og klapparstígs, svokallað AFS-bílastæði, einnig þekkt sem bláabarsbílastæðið.

Allavega, þá gekk gjörningurinn það vel að nú voru þau komin með nægan höfuðstól til að festa kaup á byltingakaffihúsinu -sem var jú megintilgangur flóamarkaðs, basar, whatyoumacallit, -sölunnar.

Til stendur að bjóða uppá lífrænt ræktað kaffi, grænku-mat (frá Sollu f.v. grænn kostur) og margt fleira smart!!!

Geðveikt! Þannig að ef mig er ekki að finna á Hallveigarstígnum, þá verð ég sennilega á Arnars og Helenu-byltingakaffi.

Hlakka til. Vonandi gengur þetta vel hjá þeim.

Róbert Fiskimaður

Mér fannst mikið til í þönkum Sverris J um hversu oboðslega sjálfhverfir við Íslendingar erum og hvað það þykir mikið fréttaefni að einhverjum þyki við fréttaefni.

Fréttatímar liðinnar viku hafa einmitt einkennst af þessu. Þetta ,,stórblaðið” eða ,,stórsjónvarpsstöðin” út í heimi fjallaði um þessa hælisveitingu, eða dvalarleyfi eða whatyoumacallit.

Annars þykir mér nú bara sorlegt til þess að hugsa að þessi maður, Bobby Fisher, sem er að mínu mati ein helsta íþróttahetja Bandaríkjanna á síðustu öld (og þá er nú mikið sagt) skuli vera í þessari aðstöðu.

Maðurinn er greinilega veikur, líkt og Muhamed Ali er veikur en við setjum náttúrlega geðveiki í sama flokk og önnur veikindi.

Jú og fyrir utan að vera veikur þá braut maðurinn viðskiptabann gegn þjóð sem er ekki lengur til.

Að hugsa sér. Þetta væri eins og Muhamed Ali ætti yfir sér fangelsisdóm fyrir að vera með Parkinsons og hafa boxað í Tékkóslóvakíu eða A-þýskalandi!

Að hugsa sér.

Texas holdem

Gaman að þessu MT-spammi! Ég var að uppfæra í hið glæsta 3.x kerfi um daginn, það sem rak mig til verksins var allt þetta spam sem maður er að fá í kommentin og allar þær glæstu úrbætur sem áttu að koma með 3.x.

Eftir uppfærsluna hefur spammið aukist um svona 10000% og ég er ekki að fá þetta voða fína comments-umsýsludæmi til að virka.

M.ö.o. fokkings fokk.

Jújú.