Monthly Archive for January, 2005

[FLA! #2] Frekar dýr ethernetsnúra

Við fórum á stúfana í dag og keyrðum um svæðið. Fórum á hinn geysi-vinsæla International Drive.

Einnig má kalla International Drive: I-drive. Eða svo hef ég heyrt. Eða réttara sagt svo hef ég lesið.

Þetta getur verið afar ruglingslegt.

Á International Drive, eða I-drive, rákum við augun í svaaaakalega stóra og fína FAO Schwarz dótabúð.

,,Hey …eigum við að kíkja þangað?”

,,Jammm!”

Á vélinni sem maður tekur miðana í bílastæðishúsið stóð svo eftirfarandi: ÞVÍ MIÐUR ER FAO Schwarz FARIÐ Á HAUSINN …have a nice day!

Æji fökkings mar. Jæja, við ákváðum nú samt að kíkja á þetta útimoll …sjá hvað er í boði.

Æji, já! Ég þurfti líka að kuapa svona ethernet-snúru til að geta tengt vélina netinu á hótelinu.

Æji, já! Við keyptum líka video-cameru í sömu búð!

Æji, já! Við vorum víst búin að ákveða að kaupa ekki cameru í USA.

Æji, já! Við fundum svona búð sem seldi PAL camerur á gúddí gúddí verði.

Vona að þessi hljóti náð fyrir augum dómnefndar (K og co)?


Hún heitir reyndar DCR-HC30E en ég fann enga góða síðu f. E týpuna. En ég meina hey!

[FLA! #1] Ví arr hír

Ferðalagið gekk vonum framar. Jr í móðurkviði var bara nokkuð stilltur og var ekkert að gera líf móður sinnar of óbærilegt.

Frekar óvænt tíðindi á 8 tíma flugi. En hann er kannski bara nú þegar búinn að sætta sig við fenginn hlut. Sonur ferðalanga og mun sjálfsagt verða dröslað víða?

Annars munaði mjóu að við Jónu myndum ekki stija saman í fluginu. Fengum 2 miðjusæti -ah, mjög ágætt!

Af því tilefni fæddist þetta ljóð:

Í kremju milli
tveggja rakspíraturna
vona að
flugfreyjan frelsi
mig.

Annnars þá skil ég ekki alveg

1) Afhverju Florida-flugið fer seinast allra Bandaríkja-véla? Þar sem þetta er nú eina 8 tíma flugið. Þýðir að maður kemur soldið seint hingið.

2) Afhverju er ferlið á Orlando International Airport svona: Ferð í gegn um innflytjendaeftirlit (INS // Dept. of HOMELAND security) -> sækir töskurnar þínar -> Ferð í gegn um tollinn -> Setur töskurnar þínar á færiband, bíddu …afhverju þarf ég að setja töskurnar mínar á þetta færiband? Those are the rules! -> Fara í gegn um vopnaleit -> Fara með lest í aðra byggingu -> Sækja töskurnar!!!

Ó vell

FLA!

Við erum að farað fara til Flodida -þ.e.a.s. ef allt gengur að óskum. Alltaf fjör að ferðast ,,stand by.” Förum með vélinni á eftir.

Tilgangurinn er m.a. að versla á erfingjann.

Síðan mun ég halda 3-4 námskeið í helstu borgum Florida, þar sem ég mun kenna fólki að kjósa. Námskeiðin verða annarsvegar í Disney World og síðan á Hooters.

Markmiðið er að má orðið Bush út úr hugum fólks -og reyndar allar stjórnmálahreyfingar sem byrja á stafnum R.

Verðum viku í sólinni.

Vinsamlegast öfundið.

Með aflitað hár!

Hvað geirst þegar maður eyðir 3 dögum á Selfossi? Jú hárið fer að aflitast, tónlistasmekkurinn og jafnvel orðanotkunin breytist.

Ég náði nú reyndar ekki að eyða 3 heilum dögum á Selfossi en a.m.k. brot úr 3 mism. dögum.

Og það er nú bara all-nokkuð.

Á þriðjudag var ég að auglýsa það sem var að gearst á miðvikudag og fimmtudag.

Miðvikudagurinn var síðan notaður til að auglýsa enn fremur það sem átti að gearst á fimmtudag.

Það sem gerðist svo á fimmtudag (í gær altso) er síðan búið.

Áhugavert. Mjög áhugavert.

Miðvikudagurinn fór í að heimsækja fjölbrautaskóla Suðurlands, FSU, með þingmönnum kjördæmisins, þeim Bjögga bjúgaldin, Lúlla lauk og Nonna næpu.

Frá UJ skunduðu: Jensi jarðaber, Arndís ananas og Stebbi súrkál.

Það gekk allt mjög vel. Við byggðum reyndar ekki hús en garðurinn er vinsæll. Ahum.

Á fimmtudaginn var síðan aðalfundur UJ á Suðurlandi á heitasta staðnum á gjörvöllu Suðurlandi, Pakkhúsinu.

Jess sör, æ kan búggí.

Á sama tíma var reyndar víst mjög áhugaverður fundur á Halló um konur í stjórnmálum.

Synd að missa af því …en ég kann ráð við öllu.

Jess sör.

Hann var tekinn upp og svo er pæling að skella honum á politik.is.

Við erum reyndar með svipaðar pælingar á framtid.is -þeas að skella ráðstefnunni á laugardaginn á vefinn þar.

Ætli það gefi góða raun?

Bara að spá hvort fólk hefði gaman af slíkri þjónustu?