Monthly Archive for February, 2005

Trivial

Spurt er: Hver samdi stál og hnífur?

Svar: Varða ekki Bubbi?

Þetta er því miður rangt svar. Rétt svar er Sjóvá Almennar.

American diplomacy

Í gærkvöld var okkur Jónu boðið í leikhús af ungu og uprennandi leikskáldi Þorliefi Arnarsyni sem var að frumsýna sitt nýjasta stykki American diplomacy á litla sviði Borgarleikhúsins. Ekki nóg með að kappi hafi leikstýrt og framleitt stykkið, heldur samdi hann handritið líka sjálfur.

Ég fékk að sjá uppköst af handritinu rétt fyrir jól og las mér til ánægju í sumarbústað við Apavatn, um þær mundir er við vorm að fagna 60. ára afmæli Gísla tengdapabba.

Leikritið hefur tekið umtalsverðum stakkaskiptum síðan þá, þar sem höfundur hefur bætt inn í það mikið af skemmtilegri samtímaádeilu/kómík -sem kryddar vel þennan skemmtilega pottrétt sem fær mann til að hlægja og hlægja og síðan hugsa. Aðalsmerki góðrar kómíku að mínu mati.

Heimasíða borgarleihúsins lýsir leikritinu svona:

Pólitískur gamanleikur sem tekur á málefnum líðandi stundar. Þeim er snúið á allar hliðar og kanta og samfélagið skoðað með gleraugum leikhússins.

Landbúnaðarráðherrann Guðbjörn Halldórsson neyðist til að taka við embætti forsætisráðherra eftir fráfall ríkisstjórnarinnar. Hann hefur háleit markmið um framtíð lýðveldisins en þau markmið fara ekki saman við ráðagerðir þeirra embættismanna í stjórnarráðinu sem fyrir eru – ráðherrar koma og fara en embættismennirnir eru eilífir!

Nú er ég sjálfsagt hvorki hlutlaus né þekktur leikhúsgagnrýnandi en ég get ekkert annað sagt um þessa sýningu en að hún hafi verið TÆR SCHNILLD! Bravó! Fimm stjörnur af fjórum mögulegum. Djöfull var þetta gaman!

Held að Þorleifur sé okkar efnilegasti leikstjóri í dag auk þess að Hjálmar og Björk fóru á kostum í rullum sínum.

Go see it! NOW!

-Heimasíða Þorleifs
-Umfjöllun á síðu Borgarleikhúsins -getið keypt miða þar ;-)

Framsókn er æði

Ég elska framsóknarfólk -líka kvenfólk! Við AJ erum þess vegna í átaki sem miðast að því að reyna að kynna fyrir þjóðinni framsóknarmennsku í sinni tærustu mynd.

Skref 1:

Andrés Jónsson formaður UJ og Haukur Logi Karlsson formaður SUF verða gestir í þættinum ‘Allt og sumt’ á Talstöðinni FM 90.9 í dag. Einnig verður á línunni frá Skagafirði hinn kunni framsóknarmaður Jón Einarsson sem einnig mun halda erindi um Framsóknarflokkinn á opnu húsi UJ …
Viðtalið verður sent út rétt upp úr kl.16 og áhugsamir um framsóknarflokkinn og stjórnmál almennt eru hvattir til að vera við viðtækin sín.

-politik.is

Kerfisstjórinn góði

Í gær kom önnur viðvörun, öllu illskeyttari, frá vestjóra Símans …var víst ekki enn búinn að uppfæra þessa öryggisglufu á garðheimasíðunni! Æji.