Akkuru var enginn búinn að segja mér að Gústi Karlító væri farinn að skrifa á frelsi.is -fokkings æði! Ég verð greinilega að fara að venja komur mínar oftar á þennan vef.
Ég held að Gústi Karlító sé helsti hugmyndafræðingur SUS.
„Segja má að dillir sé rökrétt framhald af grundinu. Sami hluti tungunnar er virkur í dillinum, en helsti munurinn er sá að núna er rannsókn lokið að sinni og leiktími hefst. Þetta stig einkennist því öðru fremur af gáska og leikgleði þar sem tunga dillar tungu og slegið er á létta strengi“ -Kúnstin að kyssa! (c) 2002
Akkuru var enginn búinn að segja mér að Gústi Karlító væri farinn að skrifa á frelsi.is -fokkings æði! Ég verð greinilega að fara að venja komur mínar oftar á þennan vef.
Ég held að Gústi Karlító sé helsti hugmyndafræðingur SUS.
Segið mér …hvað er að frétta af þessu Fisher-máli?
Maður hefur orðið svo lítið var við það í fjölmiðlum undanfarið!
Dagur dauðans endaði á bjútífull-hátt. Án þess að vera að rekja málið neitt gríðarlega, þá held ég að allt sem gæti hafa farið tæknilega-úrskeiðis hafi gert það í dag …nokkurskonar lélegt murphy´s law?
Ég var að sinna grafísku-vinnunni minni í dag og það þurfti auglýsingu í hvelli. Minn fer á stað í leiðangur og til að byrja með var fótgangurinn bara nokkuð léttur. Og allir í gúddí fíling. Síðan kom að loka hnykknum, það þurfti að skipta út einni vesælli mynd.
Og hvað gerist?
Nú þá bilar náttla myndavélin. Og svo hrynur náttla PCinn hjá ljósmyndaranum. Og svo náttla þegar honum loks tekst að senda mér myndina er netið hrunið á vinnustaðnum mínum. Og svo náttla þegar netið er aftur komið upp þá fokkast fokkings Distillerinn í fokkings fokk þannig að ég get ekki sent auglýsinguna. Og svo náttla fokkast brennarinn minn þannig að ég sit uppi með auglýsingu inní tölvunni minni og klukkan tikkar …Fréttablaðsgellan alveg að missa sig. Hvað er / var til ráða?
Jú ég afréð að ég þyrfti að fá mér einhverskonar minnislykil. Hann þyrfti eiginlega að vera amk 512 MB þannig að ég gæti komið soldið af high-res myndum oþhl …nei hann þyrfti eiginlega að vera 1 GB!
Jú eftir þessa miklu þarfagreiningu komst ég að því að þessi minnislykill var eiginlega sá eini sem kom til greina
Og nú er auglýsingin farin í prent og ég á þennan fína litla iPod …oh ég er svo happý!
Það voru þessi mótmæli í dag. UJ og UVG voru í skiltasamkeppni fyrir fundinn. Mitt innlegg í keppnina var prik sem á stóð: ekkert skilti! ekkert stríð!
Ég veit ekki hvort ekki-skiltið mitt hafi riðið baggamuninn en allavega úrskurðaði Stebbi yfirmótmælandi að það hefði verið jafntefli í keppninni. UJ fengu verðlaun fyrir stundvísi en UVG fyrir magn!
Það var soldið skondið að löggan var búin að umkringja Stjórnarráðið gulu-teipi og svo stóðu nokkrar einkennisklæddar löggur álkulegar á húshorninu.
Stebbi sagði reyndar að þeir hefðu ekki verið búnir að láta lögguna vita að þeir myndu fara upp að Stjórnarráðinu eftir mótmælin á Ingólfstorgi …en löggan var þar nú samt! Ætli það hafi þá ekki verið önnur löggufylking hjá ameríska sendiráðinu -að óþörfu?
Svo stóð UJ fyrir smá spjallirabbsfundi eftir mótmælin á Victor, þar sem títtnefndur Stebbi hélt skemmtilega framsögu um friðarhreyfinguna og tók við fyrirspurnum gesta.
Jújú.