Ég fór í gær kl 17.59 að ná mér í eintak af Tiger; Archive; Install; Repair permission og rock and roll!
Er reyndar bara svona la-la hrifinn. Það er alltaf búið að hypa þetta svo mikið upp, bæði af Apple og mínum innri röddum, þannig að ég verð eiginlega alltaf fyrir smá vonbrigðum.
Eina skiptið sem ég var ekki fyrir vonbrigðum var þegar fyrsta OS X kom út. Það virkaði náttúrlega ekkert í því stýrikerfi en það var bara svo flott og gaf fögur fyrirheit um það sem koma skyldi!
Fékk líka “Stafsetningu 2004″ “iWork” og “iLife 05″ með stýrikerfinu.
Vonandi verða notendur síðunnar varir við betra málfar eftir þetta!
Jiiibbbbbbí! Það er Tiger-dagur í dag!!!! Jiiibbbbbbí! Það er Tiger-dagur í dag!!!! Jiiibbbbbbí! Það er Tiger-dagur í dag!!!!
Fyrir utan hvað ég hef hlakkað til þessa nýja stýrikerfis, þá er tölvan mín komin í ágætt hakk eftir að hafa verið stanslaust í gangi í um ár. Ég slekk aldrei á henni og ég er að flakka milli neta og með mis-mörg jaðartæki tengd hér og þar. Hún hefur staðið sig eins og hetja en er alveg að verða FUBAR. Ég hef frestað því í soldinn tíma að gera archive install. En nú þegar Tiger er kominn reikna ég með að áhyggjur mínar hverfi eins og dögg fyrir sólu (rosalega er þetta asnalegt orðatiltæki!)
Það er víst formannsslagur í Samfylkingunni? Fólk hefur verið að taka út fústrasjónina sem þvi fylgir með ýmsu móti. Sumum finnst gaman að bauna á litla sæta framtíðarhópinn minn, öðrum finnst gaman að hringja í litla sæta Jensa og ,,spjalla” í símann og enn aðrir syngja!
Já hún Lára.is (snillingur) hefur veitt þessari fústrasjón í mjög svo uppbyggilegan farveg -hún samdi snilldar-kántrí-lag sem er sjúklega fyndið. Lag ársins? Hugsanlega.
Ég er að setja persónulegt met í skrifum á Politik.is þessa vikuna. Ég á 3 af síðustu 4 greinum. Þannig að ég sinni politik.is mun betur en blogginu mínu um þessar mundir. Fuss!
Í dag fékk ég útrás fyrir reiði mína á Hæstarétti.
Eru allir áskrifendur The Economist á Íslandi nú orðnir sérfræðingar um flatan skatt?
Ég spái fyrir um að þetta verði næsta tískubólan í íslensku dægurþrasi!
Töfralausnir rokka! Og ég er að breytast í kverúlant!
Þá er nákvæmlega hálfur mánuður síðan eitthvað var ritað á þessa síðu. En ég hef ekki setið auðum höndum á meðan -óseiseineieneinei.
Í síðustu viku var ég að ibba mig í mogganum, reyndi að stofna til ritdeilna við Einar Karl, með kurteisislegu-svari sem birtist 6 moggum eftir að ég sendi greinina inn. Mér finnst soldið glatað þegar maður er að bera svona af sér sakir að það birtist ekki fyrr en eftir dúk og disk -og umræðan dottin niður.
Hugsanlega vill mogginn ekki stofna til ritdeilna. Hugsanlega var þetta allt of kurteisislegt hjá mér. Hugsanlega?
Í dag var ég síðan með smá hugleiðingu um Guðna kallinn á Politik.is!
Aukinheldur skrifaði ég heilt pregament um Zapatero á framtid.is! Þar reifaði ég þetta fyrsta ár hans í embætti og þær umbætur sem hann hefur staðið fyrir. Virðing mín fyrir þeim manni fer vaxandi með hverjum degi. Er þetta Alliende okkar daga? Vona allavega að það fari ekki fyrir honum en þær umbætur sem hann hefur náð að framkvæma á þessu ári eru kraftaverki líkastar.
Í tilefni dagsins / greinarinnar: José Luis Rodrigues Zapatero, f.v. formaður UJ á Spáni & Andrés Luis Rodigues Jónsson, núv. formaður UJ á Íslandi takast í hendur og sögulegar sættir milli þessara tveggja hreyfinga nást.