Síðustu tvær vikur hafa liðið hjá án þess að ég hafi tjáð mig nokkuð að viti hér á vefnum. Fyrst var það aðdragandi landsfundar og öll sú vinna sem fór í að skipuleggja þennan mikla fund, en ég bar að miklu leyti ábyrgð á málefnavinnunni og hópastarfinu á fundinum.
Eftir mig liggja þrjár skýslur frá framtíðarhópnum.
1. lota
2. lota.
Skýsla framtíðarhóps.
Auk þess setti ég upp SamViskuna -landsfundarútgáfu fyrir Unga jafnaðarmenn en henni dreifðum við á fundinum í þúsund eintökum.
Síðan gerði ég barmmerki sem ég veit reyndar ekki alveg hvað varð um! Þau voru samt soldið kúl … að mínu hógværa mati!
Sjá:

Fundurinn var glæsilegur og öll framkvæmd hans flokknum til sóma. Við í ungliðahreyfingunni lögðum á okkur ómælda vinnu og margar andvökunætur sem ég veit ekki hvort flokksmenn muni nokkurntíma skilja eða þakka okkur fyrir? Ingvar framkvæmdastjóri var allavega glaður
Það skítkast sem kom frá fjölmiðlum á okkur og varaformann flokksins eftir fundinn gerði mig ótrúlega drapran og finnst þessi sirkus búinn að vera einhver sá sorglegasti tilbúningur sem ég orðið vitni af. Ágúst Ólafur hefur svarað vel fyrir sig í fjölmiðlum og ég veit ekki hvað maður getur annað gert en haldið áfram að lýsa því yfir að hvorki ungliðahreyfingin né Ágúst Ólafur gerðu nokkuð rangt á þessum landsfundi. Þegar formaður kjörstjórnar, kjörstjórnin, formaður flokksins, formaður framkvæmdastjórnar flokksins, framkvæmdastjóri flokksins og starfsfólk fundarins eru búin að gefa út tilkynningar að ekkert í framkvæmd kosninganna hafi verið vafasamt og úrslit þeirra 100% lögleg veit maður ekki alveg hverju maður getur bætt við?
Allar sögur um rútuferðir á okkar vegum og að við höfum reynt að kaupa atkvæði eða kjósa fyrir fjarstatt fólk er hrein og klár lygi.
Það er von mín að þessari lygahríð sé nú lokið og að flokkurinn geti farið að fylkja sér á bak við nýkjörna forystu í stað þess að skjóta á hana úr laumi og um leið að rengja lýðræðisstofnanir flokksins og þetta landsþing sem hefði aldrei orðið jafn glæsilegt ef ekki verið fyrir ungliðahreyfinguna.
Á þessu þingi sýndi ungliðahreyfingin mátt sinn, við tókum virkan þátt í málefnastarfinu og meðlimir okkar fóru ofast í pontu af öllum hreyfingum. Ungt fólk bauð sig fram í mörg embætti og hlutu góða kosningu t.a.m. í flokksstjórn, verkalýðsráð, framkvæmdastjórn og jú varaformannsembættið. Það ætti að vera fagnaðarefni fyrir flokkinn að hafa loks öðlast jafn stóra og virka ungliðahreyfingu sem hefur vaxið mjög frá síðasta þingi. Þar er mörgu að þakka, t.a.m. að nú er hreyfingin með eigin starfsmann, framkvæmdastjóra, sem hefur unnið kraftaverk fyrir UJ, þessi maður er þvílíkur öðlingur og dugnaðarforkur, og eiginlega bara fullkominn ooooh bara ef allir gætu nú verið jafn fullkomnir og hann þá væri þessi heimur …líkari mér
Að endingu hvet ég ykkur til að lesa þennan djöflaeyjupistil. Og náttúrlega Ólaf Teit í Viðskiptablaðinu ,,Þetta fullorðna fólk.”