Á morgun gerist það! Feðraorlofi lýkur og ég tek aftur upp mína fyrri iðju. Sest við básinn minn og byrja að jórtra á ný.
Adju kæra orlof. Þetta var frábært. Vildi - gæti - myndi - hefði alveg viljað ár í viðbót með Ými.
Óvell.
Skemmtilegir tímar framundan og ný viðfangsefni!
Skemmtilegir tímar að baki. Sjálfsagt skemmtilegasti tími lífs míns.
Feðraorlof er mesta snilld.
Þessi Katrina er ekkert að grínast með þetta! Fimmtastigs fellibylur -verður einungis sá þriðji í sögunni af þeirri stærðargráðu til að skella á BNA.
Við erum búin að gjóa augunum á fréttir af aðsiginu nú í kvöld. Þetta lítur hræðilega út.
Ég sá eina dómsdagsfréttaskýringu sem sagði að vegna legu borgarinnar við flóa, stöðuvatn og fljót um 2m fyrir neðan sjávarmál getur allt eins verið að öll borgin sökkvi í 4-5 metra háu vatni sem gæti verið um hálft ár að fara.
En þetta eru jú verstu spár.
Síðan sá maður á einni kapalstöðinni að þeir sem hafa ekki verið svo gæfusamir að geta hoppað upp í SUVinn sinn og flúið óskupin eru að safnast saman í Superdome-höllinni.
Mér er spurn: hversu gæfulegt er það þegar búist er við einum versta fellibyl sögunnar að safna fólki saman á einn stað og það á svona Stað sem tekur væntanlega á sig massífan vind -ætli þakið þoli þetta osfrv?
Úff!
Ef þið sjáið myndir frá íþróttahöllinni takið þá eftir húðlit 99.9% þeirra sem eru í höllinni. Misskiptingin holdi klædd.
Úff!
Ég greip hér í pjésalappann hennar tengdó. Allt í þágu vísindanna sjáiði. Mig langaði svo að kíkja á nýju google-tólin -þeim rignir! Og gaman hvað þau eru algjörlega uni-platform!
Prófaði
- Google Talk: þetta lítur vel út. Hefur alla sömu virkni og samtengingu við gmailið og msn hefur við hotmailið. Ágætt líka að hægt sé að nota þennan samskiptastaðal í t.d. Adium í Makkanum. Samt langbesta og skemmtilegasta virknin þegar maður er að nota sjálft googleforrtið (duh!) Gallinn er kannski að fólk nennir lítið að vera að flakka á milli IM forrita? Annars, þá er það líka mismunandi milli landa hvaða IM forrit hefur vinninginn -vonandi sigrar google -allavega yfir MSN! Ég er mun spenntari að fá virknina við gmail accountinn minn heldur en hotmailið!
- Google Desktop (uppfærsla altso - 2.0 BETA): Margfalt betra en default leitarvélin í XP -þó ljósárum á eftir Spotlight! Öll önnur virkni -s.s. tenging við browser, Picassa, Google Talk ofl. soldið eins og dashboard widgetin í Tiger -bara ekki eins töff!
- Google Earth: Stolið …alveg eins og World Wind frá NASA nema með google-lógói!
- Picassa og Hello: Virkar, létt í keyrslu og gott user-interface (m.v. önnur PC myndvinnsluforrit!) Það má sjálfsagt finna nokkuð marga vankanta á þessu ef maður er seríös fótógrafer en fyrir 99% af fólki þá ætti þetta að virka vel? Sakna aðallega að það sé ekki hægt að keyra myndskeið -svipuð vandamál hafa s.s. verið í iPhoto (eiginlega búið að redda með skítamixi en samt eiginlega ekki!)
Þar hafið þið það.
Nú er bara að vona að tengdó sé sama að ég sé búnað tvíka alveg massíft í usernum hennar!
Hér er hann kominn …síðsumarsmellurinn með kahadhlinum:
Á Selfossi
ég var einusinni fastur
ég var einusinni fastur í klukkutíma
ég var einusinni fastur í klukkutíma á selfossi
alveg að bilast
alveg að bilast í klukkutíma
alveg að bilast í klukkutíma á selfossi
vantar eitthvað
vantar eitthvað á selfossi
vantar eitthvað á selfossi í hárið á mér
langar ógeðslega mikið
langar ógeðslega mikið í súkkulaði
langar ógeðslega mikið í súkkulaði á selfossi
Smellið hér til að heyra lagið í flutningi kahadlhsins!