Við erum á leið í Borgarfjörð, í ensku húsin, með fjölskyldunni hennar Jónu.
Það er mini-ættarmót. Engu hefur verið tilsparað í undirbúningnum og hefur verið stofnuð keppni, sérstakir hólmaleikar, þar sem fjölskyldan reynir með sér í ýmsum greinum.
Sá sem hlýtur sigur fær forlátann bikar að launum!
Ég lagði til að greinarnar væru golf, trivial persuit og þekking á stefnu Samfylkingarinnar!
Það var kolfellt og ég sakaður um að vilja bara vinna! Öss. Þvílík fásinna!
Það verður keppni í Olsen Olsen (sem ég á eftir að massa) og Actionary (sem ég á eftir að massa) og einhverju fleiru sem ég á líka eftir að massa …
Nú ætlar Hr. Wikipedia, Jimmy Wales, að bylta námsbókagerð með sama hætti og hann réðst á alfræðiorðabækur.
Hugsunin er að gera ,,open source” skólabækur sem verða öllum aðgengilegar og að kostnaðarlausu.
Einnig er ráðgert að kennarar, nemendur og fræðimenn taki til jafns þátt í verkinu.
Google hefur verið að gera svipaða hluti, þeas að sanka að sér námsbókum. EN það er höfundaréttur á öllu því efni!
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu. Gæti þó tekið ,,smá” tíma að verða raunkostur í skólastofunni?
Er þetta er fyrsta alvöru skrefið í að gera bókalaust nám // skóla að eftirsóknaverðum valkost?
Í gær fórum við með Ými í sinn fyrsta sundtíma. Það gekk afar vel, jafnvel þótt pabbi hans hafi gefið honum ítrekað að smakka á laugarvatninu var engan bilbug á honum að finna og að sjálfsögðu bar hann af öðrum sundgörpum í lauginni.
Raunar fór það svo að við þekktum allnokkra foreldra í ungsundinu, gamlir skólafélagar og vinnufélagar. Ætli maður sé ekki á þessu týpíska barnseignaraldri?
Við Jóna tókum það saman hve mörg börn við vitum að hafi fæðst á árinu. Við vorum komin langt á fjórða tug þá -og enn bætist í!
Sundið eru átta tímar alls, tvisvar í viku. Í þriðja tíma fer kappinn að dýfa sér í laugina.
Hann er búinn að fá smá þjálfun hjá pabba sínum í sturtunni en það verður gaman að sjá hvernig hann bregst við dýfu með öllu!
Amma verður lögð til hinstu hvílu í dag. Hún er jarðsungin frá Kópavogskirkju kl. 15.00 og síðan verður erfidrykkja í Lionssalnum í Auðbrekku.
Ég skrifaði litla minningu um þessa miklu konu í Morgunblaðið í dag. Það er afskaplega fallega skrifað um hana og greinarnar margar. Það gleður mig að minningu hennar sé haldið svo rækilega á lofti.