Má ég þá bjóða fram þennan hógværa lista yfir ferðalög ársins út fyrir landsteinana! Nokkrir bloggbræður brugðu á það ráð að varpa þessu fram á síðum sínum á dögunum -og þar sem ég er afar svag fyrir öllu áramótauppgjöri held á nú niður þessa sömu braut.
- Í febrúar fórum við Jóna í barnaundirbúningsinnkaupaferð til Flórída og fengum að keyra á ströndinni í Daytona.
- Í apríl fór ég í vinnuferð til Danmerkur og Finnlands. Hápunktur ferðarinnar var sigur minn í húllakeppni á sjóræningjaskipi í Turku í Finnlandi. Sigurlaunin var forlát kampavínsflaska sem er enn ódrukkin -sjáum hvað gerist á morgun!
- Í nóvember fór svo litla fjölskyldan til Kúbu -sjálfsagt eftirminnilegasta ferðalag ævinnar.
- Í desember fór ég svo til Hollands og Belgíu á vegum Varðbergs. Hápunktur ferðarinnar var danskur júlefrokost í miðborg Brussel, jú og að hitta Jaap de Hoooop Scheffer.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek saman svona lista yfir ferðalög ársins og stend því ekki alveg klár á því hvort þetta teljist gott eða slæmt, mikið eða lítið af ferðalögum, þeas hvernig ég standi mig í samkeppni við sjálfan mig! Gæðin voru þó allavega mikil.
Ferðalög eru með helstu áhugamálum okkar hjóna og gaman að sjá hvað litli snáði virðist líka hafa gaman af þessu brölti. Vonandi verður næsta ár öllum tilefni og tækifæri til aukinna ferðalaga, hvort heldur innanlands eða utan.
Skilaboð til foreldra
Við erum byrjuð að skipuleggja ferðalög með Jósef Ými til Norður Kóreu og Íran einhverntíma á næsta ári. Írak var líka ofarlega á lista en fyrst þeir teljast ekki lengur til möndulveldis hinna illu, þá höfum við ákveðið að fresta för, þar til löglega kjörinn forseti landsins, Saddam Hussein, snýr aftur.
