Monthly Archive for January, 2006

Virkjum Fossvogsdalinn

Í SUMAR þegar ég var í feðraorlofi gekk ég daglega með son minn í Fossvogsdalnum. Dalurinn er æði stór og hægt er að eyða dágóðum tíma í að spássera umhverfis hann á malbikuðum stígum. Það er þó lítið annað við að vera fyrir fjölskyldur og maður gengur í hringi eftir stígunum í leit að bekk eða öðrum viðverustað.

Þegar vel viðraði lét ég hugann reika og ímyndaði mér góðviðrisdaga þar sem hægt væri að fara í fjölskylduvæna garða, setjast svo á lítið kaffihús og fá sér hressingu og lesa í bók á meðan sá stutti fengi sér kríu.

Vannýtt auðlind
Dalurinn er vannýtt auðlind, græn vin í borgarsamfélaginu sem þarf að hlúa að. Hann er á miðri leið milli Elliðaárdals og Nauthólsvíkur og útivistarsvæði fyrir mikinn fjölda höfuðborgarbúa. Göngustígarnir sem hafa verið lagðir bera vott um hve mikil ásókn er í dalinn. Allt árið um kring er fólk á öllum aldri að ganga, hlaupa og hjóla í dalnum.

Í austari hluta dalsins, þeim hluta sem nær frá íþróttasvæði HK að Víkingsheimilinu, er fátt annað en áveituskurðir og gömul beitilönd sem á sumrin hverfa í hnéháu grasinu. Þetta svæði býður upp á mikla möguleika og því stingur vanrækslan enn meira í stúf. Börn sem vilja nota svæðið undir sparkvelli þurfa að leggja sig í hættu við að stökkva yfir breiða og djúpa skurði og jafnan er grasið það hátt að það hentar ekki fyrir neitt annað en feluleiki.

Baráttan um dalinn
Í gegnum tíðina hefur verið tekist mjög á um skipulag og nýtingu Fossvogsdalsins. Við sem búum við rætur hans getum þakkað þeim sem hafa varið þetta græna svæði gegn vegagerð og frekari byggð. Þeirri baráttu er kannski aldrei lokið, þótt almenningur geri sér sífellt betur grein fyrir mikilvægi grænna svæða. Baráttan má þó ekki leiða til þess að svæðin sem hljóta vernd falli út af ratsjá bæjaryfirvalda og skipulagsnefndar.

Grænum svæðum fækkar ört og það verður æ lengra að fara út í sveitina er höfuðborgarsvæðið teygir anga sína upp um fjöll og firnindi. Í framtíðinni verður það enn mikilvægara að skipuleggja grænu svæðin betur svo þau geti almennilega sinnt hlutverki sínu.

Það hefur varla verið markmið þeirra sem vörðu dalinn gegn ásókn byggingarkrana að hann myndi falla í gleymsku eða ekki fá að þróast og mótast líkt og önnur græn svæði á höfuðborgarsvæðinu.

Central Park, Fossvogi
Það er ekki ósennilegt að svæðið frá Elliðaám inn að Öskjuhlíð með Fossvogsdalinn sem miðju verði að lífæð höfuðborgarsvæðisins í framtíðinni, líkt og Central Park í New York.

En þar lýkur samanburðinum, því hver lófastór blettur í Central Park er skipulagður. Hann er hugsaður sem griðastaður þar sem hægt er að hverfa úr skarkala borgarsamfélagsins um stund og komast í snertingu við náttúruna. Þar er mikið fyrir augað, fagurkera, garðyrkjufræðinga og jafnvel matgæðinga. Þar eru fínir veitingastaðir og söfn við jaðra garðsins, einnig leik- og tómstundasvæði fyrir börn og fullorðna.

Laugardalurinn er dæmi um garð sem hefur þróast í þessa átt, fjölskyldu-, húsdýra- og grasagarður í bland við íþrótta- og tómstundavelli og -byggingar. Hefur hann notið mikilla vinsælda hjá borgarbúum og annar vart öllum þeim sem flykkjast þangað á björtum sumardögum.

Þínar hugmyndir
Laugardalurinn sýnir okkur að vel skipulögð græn svæði eiga upp á pallborðið og okkur vantar fleiri slíka staði. Möguleikarnir fyrir Fossvogsdalinn virðast endalausir. Við eigum því að halda hugmyndasamkeppni um framtíðarnýtingu svæðisins, þar sem íbúarnir geta komið hugmyndum sínum á framfæri og bæjarfélagið kemur sigurtillögunum í verk.

Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi og sækist eftir 3. sæti á lista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi.

________________________
Greinin birtist áður í Morgunblaðinu laugardaginn 28. janúar 2006.

Furugrund

Ég var að koma úr einkar ánægjulegri heimsókn á leikskólann Furugrund. Þar tók á móti mér jafnaðarmaðurinn og snillingurinn hún Helga Jónsdóttir, leikskólastjóri. Hún leiddi mig í gegn um skólann og uppfræddi mig um þá starfsemi sem fer fram innandyra.

Þeim leikskóla hefur haldist mjög vel á faglærðu starfsfólki og mun minni starfsmannaveltu en þekkist víða annars staðar í bænum.

Það var yndislegt að sjá þessi litlu kríli í leik og starfi. Það er greinilegt að þeim líður vel á leikskólanum hennar Helgu.

Það er líka gott fyrir frambjóðandann að fá gleggri mynd af því sem er að gerast í leikskólum bæjarins. Og það góða og uppbyggilega starf sem fram fer á Furugrund er öðrum til eftirbreytni.

Leikskólinn er t.d. í bráðsniðugu samstarfsverkefni við Háskólann á Akureyri um samningu námsefnis fyrir þetta fyrsta skólastig.

Bráðum fer hann Jósef Ýmir minn að komast á leikskólaaldur og eftir þessa heimsókn er víst að Furugrund verður efst á óskalista okkar hjóna.

Vonandi vinnst tími í næstu viku til að heimsækja leikskóla þar sem ástandið er ekki eins gott, t.d. í Dal og Rjúpnahæð.

Þessi heimsókn gaf mér mjög mikið, litlu krúttin sem bræða mann við fyrsta bros og síðan starfsfólkið með Helgu í fararbroddi, höfðingjar heim að sækja. Takk fyrir mig.

Sigur fyrir konur

,,Gunnsteinn segir konur hafa unnið sigur í prófkjörinu” mbl.is

Tek undir með Sverri Jak, það hlýtur að vera mikill heiður fyrir konurnar að fá að vera á eftir þremur körlum!

Atlantsskip vilja fara

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Gunnar Inga bæjarstjóra um hugsanlegt brotthvarf Atlantsskipta úr Kópavogshöfn.

Þetta er í alla staði mjög áhugavert mál, taktík Atlantsskipta, svör bæjarstjórans og síðan spurningin um hvort það eigi yfir höfuð að vera að byggja upp verslunar- og kaupskipahöfn á þessum reit, umhverfis íbúabyggð.

Í fyrsta lagi þá má ætla að yfirlýsingar Atlantsskipa séu til þess fallnar að skapa þeim betri stöðu í samningum við bæinn. Félagið hefur gengið nokkuð hart fram í samningum og vilja gera langan samning, 25-50 ára, þar sem þeim er ávallt tryggt lægsta mögulega verð á hafnar- og aðstöðugjöldum á höfuðborgarsvæðinu.

Í annan stað virðast viðbrögð bæjarstjórans örvæntingarfull, því Gunnar hefur lagt ríka áherslu á uppbyggingu kaupskipahafnar í Kópavogi og vill halda áfram framkvæmdum á hafnarsvæðinu -í óþökk íbúa!

Þetta er gert á sama tíma og nágrannasveitarfélögin eru að ákveða að færa slíka starfsemi út á jaðra höfuðborgarsvæðisins og bindast höndum um að efla hafnarstarfsemi í sameiningu á þeim svæðum sem það þykir henta.

Atlantsskip og Atlantsolía hafa hrist upp í íslenska neytendamarkaðnum svo um munar og ég óska þeim alls hins besta.

Í þessu máli virðast þó hagsmunir fyrirtækisins og hagsmunir sveitarfélagsins og íbúa í Vesturbæ Kópavogs ekki fara saman.

Það er því spurning hvort það sé ekki tímabært að fara að skoða af alvöru þær tillögur Samfylkingarinnar sem ganga út á að draga úr atvinnustarfsemi við höfnina og byggja þar upp vistlega smábátahöfn og aðstöðu fyrir skemmtiferðaskip sem tengist svo enduruppbyggingu íbúabyggðar, verslunar og þjónustu á svæðinu.