Monthly Archive for March, 2006

Makki

Jósef Ýmir lærði nýtt orð í dag ,,makki”! Mamma hans reyndi fyrst að kenna honum orðið ,,tölva” en það einhvern vegin vakti ekki áhuga, síðan skipti hún um gír og reyndi ,,makki” og viti menn - en - to -tre - hann var farinn að herma eftir.

Mæ godd hvað þetta er gáfað barn.

Til Brussel

Á morgun fer ég til höfuðborgarinnar á vit ævintýranna með honum PR mínum.

Hugmyndin hjá okkur var að fara þarna út, hitta Barroso, gera grein fyrir stöðu mála hér á landi, gera okkur betur grein fyrir stöðu belgíska bjórsins, belgísku vöflunnar og -ostsins.

En í reynd er þessi ferð hernaðarleyndarmál, þannig að ég má sem minnst segja. Mér var sagt að bulla eitthvað um tilgang ferðarinnar …djöst tell ðem jú ar góing tú ít som voffles and bír and tjís for eí fjúf deis.

What happens in Brussels, stays in Brussels!

Halló ég er heimskur.is

Eftir að hafa kallað starfsfólk leikskólanna nöfnum, svívirt það með framkomu sinni alla sína bæjarstjóratíð, gert barnafólki í nýrri hverfum bæjarins nánast ómögulegt að stunda vinnu svo vikum og mánuðum skiptir hefur Gunnar bóbó Birgisson, (ekki minn)bæjarstjóri ákveðið hvernig hann ætlar að vinna sér inn atkvæði barnafólks í bænum:

Jú með því að taka upp stefnu Samfylkingarinnar sem hefur verið að berjast fyrir lækkun leikskólagjalda (sem voru þau hæstu á höfuðborgarsvæðinu) og lækkað gjöldin um 30%.

Ég samgleðst vinum mínum í minnihlutanum í bæjarstjórn sem eru búnir að flytja um þetta ca. þúsund tillögur í bæjarstjórn á síðustu árum og alltaf uppskorið skæting og hroka frá meirihlutanum.

En sem foreldri samgleðst ég aðallega barnafólki í bænum sem er loks að sjá einhvert brot af þeirri gríðarlegu tekjuaukningu sem bærinn hefur fengið á silfurfati - í formi hækkaðs fasteignarverðs. Hingað til hafa óperuunnendur og atvinnumenn í knattspyrnu aðallega fengið að njóta aukinnar skuldsetningar heimilanna!

Það er einungis meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs sem getur verið það heimskur að halda að Kópavogsbúar sjái ekki í gegn um þetta ömurlega plott - þar sem ríghaldið er í valdið með öllum tiltækum ráðum (lesist: blekkingum).

Þessum mönnum er skít-sama um fólkið í bænum og þeir hafa sýnt það aftur og aftur og aftur og aftur.

Ekki láta blekkjast.

Ísland áfram í NATÓ, Ísland áfram í NATÓ og herinn burt!

Ég veit að fólk hefur beðið með sviðarsultuna í regnkápunni eftir því að ég tjái mig um öryggis- og varnarmál þjóðar vorrar á þessari síðu. Það gerist vart úr þessu?

Erum við ekki enn í NATÓ? Fínt. Er það ekki nóg? Júbbs. Reyndar væri ágætt að vera gulltryggður með veru í innri markaði ESB -en ég meina hey!