Það er gaman og gefandi að skrifa um gallana sína. Maður fílar sig eitthvað svo vel á eftir. Eitthvað svo töff og fullkominn!
Einn af mínum göllum er sú iðja að taka fólk í guðatölu. Ég hef átt mér uppáhalds þetta og uppáhalds hitt -svona eins og allir?
Síðan eru það GOÐIN. Allt, allt, allt önnur ella. Mjög exsklúsífur klúbbur aðeins örfáir sem fá þangað að koma.
Á unglingsárum voru það einstaka rokkstjörnur, síðar jazzleikarar, síðar rithöfundar og síðan stjórnmálamenn og miklu síðan stjórnmálafræðikennarar sem rötuðu á Goðastaði.
Þetta varð að einhverskonar vandfýsinni söfnunaráráttu sem erfitt var að losa sig við. Ég er bara þannig gerður.
Vandamálið við þetta brask er aðallega og einfaldlega þegar GOÐIN valda manni vonbrigðum. Hvað maður getur verið sár og svektur. Afhverju gerði hann þetta eða afhverju sagði hún þetta?
Maður reynir og reynir að verja goðin sín, fyrir sjálfum sér og öðrum. Það gengur svona misvel -fer eftir gengi krónunnar.
Vest af öllu er þegar maður þarf að reka einhvern úr guðatöluklúbbnum. Það er aldrei gaman að reka fólk -en það fylgir því víst að vera svona geðveikur!
Það eru víst nokkrir sem ég hef þurft að reka. Obboslega varð maður sár, þurfti jafnvel nokkra daga til að ná mér. Maður á bara ekki að hleypa svona fólki nálægt sér, hugsa ég um leið og ég sver þess heit að hætta þessari fáránlegu söfnunaráráttu!
En ég er ekki gallalaus (duh) og stend mig enn að því að hleypa fólki inn í þessa litlu klíku í heilabúinu.
Fyrir tæpum tveimur árum rataði bandarískur hagfræðingur Jeffrey D. Sachs í klúbbinn. Í fyrra var það svo Dagur Sigurðarson. En nú fyrir skemmstu rataði síðan íslenskur draumalands-rithöfundur inn í þetta heilahólf …sem kom íbúanum eiginlega alveg í opna skjöldu …ég vissi eiginlega ekki af því að það væri enn verið að taka við nýjum legjendum!
Átti maður ekki að hætta þessu fyrir löngu síðan? Jafnvel á gelgjunni?
Pfff.
Ég veit ekki hvort maður hafi nokkurn tíma ráð eða rúm til þess að taka saman alla ábúendur hólfsins, þá núverandi sviffugla sem og fallnar stjörnur?
Kannski er til pilla, bók eða plata til að lækna mann eins og mig? Og kannski ratar höfundur pillubókarplötunnar í guðatölubinginn?
Pfff.