Litla fjölskyldan og mútta hefur tekið hús á leigu í Hrísey. Við verðum í eynni í viku (frá föstudegi til föstudags.)
Við eigum öll ættir að rekja til eyjunnar. Pabbi Jónu og hans fjölskylda bjuggu í eynni fram á sjöunda áratuginn. Föðurafi minn og hans fjölskylda ólu manninn þarna kynslóð fram af kynslóð.
Við hjónin erum afkomendur hins merka Hákarla Jörundar. Við erum fimmmenningar og Ýmir því skyldur Jörundi í báða ættliði.
Það verður eitthvað lítið um uppfærslur á meðan dvölinni stendur en ég vek athygli á símabloggssíðunni minni:
jens.gsmblogg.is
sem verður vonandi uppfærð á þeim tíma.
Ef einhver klár tölvunördi les þessi orð þá má hann endilega uppfræða mig um hvernig ég get tengt Hexia/OgVodafone símabloggið inn á þetta fallega vefrit.
Var að leita að einhverjum RSS/XML leiðum en hef ekki fundið neitt patent sem talar við WordPress.
MIÐSTÉTTARBLÚS.mp3
Texti:
Hvað ertað væla?
Verteggi með þessa stæla.
Þetta er mesta
tekjuskattslækkunarhagvaxtarhækkunar
skeið í heimi.
Komdu og vertu með í
þessu subbuskapsgeimi.
Það dugar ekkert minna en
14 fægðir jeppar
og 18 pottaleppar
í palisanderspílagrímsturni.
Steinsteypuvirki er
okkar akuryrki.
Nú dugar ekkert minna
en VINNA VINNA VINNA!
Blogg.is vefsamfélag Staksteinablaðsins virðist vera að blómstra, springa út, breytast í túlipana með of miklum áburði og túnþöku.
Af hverju eru jurtasamlíkingar notaðar svona mikið í íslensku?
***
Ég er ekkert voðalega duglegur að vekja athygli á nýjum síðum sem ég skoða. Hér eru fjórar síður sem ég skoða reglulega og Styrmi virðist ganga illa að ritstýra.
- Aggi er hagfræðinemi í leit að stjórnmálaflokk. Eftir að Aggi sagði sig úr Frjálslyndaflokknum hefur hann reynt að sannfæra sig og sér nærstadda að hann eigi ekki heima í Samfylkingunni með litlum árangri. Aggi er eðalkrati og því er þessi píslaganga skemmtileg
Aggi er frábær penni með góðan smekk á tenglum.
- Orðið á götunni er nýtt stjórnmálaslúðursblogg sem fer vel af stað. Greinilegt að huldumaðurinn eða mennirnir (konur …líka menn) á bak við skrifin er iðinn við upplýsingaöflun og vel tengdur. Kíkið á orðið fyrir daglegan skammt af slúðri.
- Frelsi og franskar er stjórnmálablogg um bandaríska pólitík og kúltúr. Skemmtilegir þankar fyrir þá sem hafa áhuga á dýragarðinum við Potomacfljót. Ætli höfundurinn (sem ég þekki ekki neitt) sé ekki búsettur þar Vestra? Ritstíllinn svipar til eigin skrifa úr Vesturheimi, ákveðið slangur sem slæðist inn í textann þegar maður er ytra. Gott stöff!
Ég keypti mér fyrir skemmstu ,,pró” aðgang að Flickr. Slíkt kostar um 1.500 kr á ári og veitir mér og myndunum mínum ótakmarkað geymslurými.
Ég sá þetta bæði sem ágæta afritunarleið (þó ég afriti myndirnar mínar reyndar vikulega með öðru móti) auk þess að vera skemmtileg leið til að deila myndum með umheimnum.
Vinna við tengingu Flickr við síðuna mína er langt komin og þá verður hægt að skoða ,,public” söfnin mín hér á þessari síðu. Sko þessari síðu sem þú ert á núna sko, ekki sko Flickr sko.
Þetta er alveg frábært og netmóðins umhverfi sem ég er að digga í strimla. Tögg eru kúl.
Aðgangsstýringin rokkar en svo er líka gaman að tilheyra þessu samfélagi og geta deilt lukkulegum skotum með netheimi.
Ég var í þessu að skoða kommúnistasafnið -áhugavert?
Velti því fyrir mér afhverju Islandia á ekki heimahöfn í landalauginni -veit það einhver?
Þeir sem eru ekki komnir með Flickr eru kynvillingar, geitur eða tjéllingar og eru alls ekki hipp og kúl. Ég er s.s. líka búnað vera að horfa soldið á Borat á Google! (þökk sé Agga!)