Monthly Archive for July, 2006

Jensi deilir áhyggjum sínum af stöðu mála í Supernovaþættinum

Nú virðist ég dottinn inn í þennan Supernova-þátt. Fylgist með áhuga hvernig samlandanum reiðir af. Loksins eigum við okkar fulltrúa í þunnu bandarísku raunveruleikasjónvarpi.

Hvað geta lesendur þessa vefs geta nefnt mörg lög eftir:

Tommy Lee,
Jason Newsted
og Gilby Clarke

???

Ég held að þessir menn eigi það sameiginlegt að hafa verið í þekktum rokkhljómsveitum án þess að hafa komið mikið af tónsmíðum þar á bæ?

Reyndar er þekking mín á Mötley Crew fremur takmörkuð en ég hlustaði mikið á hinar hljómsveitirnar.

Fyrir utan að vera leiðinlegur bassaleikari þá kom Jason Newsted lítið sem ekkert að tónsmíðum Metallica ef þið skoðið hverjir eru skrifaðir fyrir lögunum þá er það oftast dúettinn Hetfield og Ulrich. Síðan hefur Hammett verið skrifaður fyrir nokkrum lögum.

Gilby Clarke var einhverskonar Slash-hækja í GNR sem tók við þegar Izzy Stardlin hætti í miðri tónleikaför. Clarke var síðan rekinn úr hljómsveitinni eftir nokkur ár. Veit ekki alveg hvaða meistarastykki hann hefur samið en það hlýtur að vera eitthvað ótrúlegt, slíkt er yfirlæti mannsins í þættinum.

Kannski er Tommy Lee þvílíkur tónsmiður og á eftir að bera þessa sveit á öxlum sér? Boom over here boom over there lagið í BarbWire var allavega ótrúlegt!!!

Það verður því fróðlegt að fylgjast með framgangi þessarar sveitar er þætti lýkur. Ætli Supernova verði eftirminnilegt band í rokksögunni?

Þessi þáttur hefur orðið til þess að ég hef farið að róta og garfa í gömlum slögurum. Núna er það Wallflowers-platan frá ´96 Bringing down the horse.

Gaurinn sem söng One headligt datt reyndar út, í stað laglausrar steypu í spandexgalla. En svona er lífið í beinni.

Íslenski gaurinn er að standa sig með ágætum og virðist ætla að komast eitthvað áfram í þessu vali. En þessi Delana hlýtur að verða fyrir valinu? Hún hefur nokkuð mikla yfirburði só far -ekki satt?

Hvaða djö?

Blaðið hefur batnað. Blaðið hefur batnað svo mikið að ég er farinn að lesa blaðið/Blaðið.

Á tvistinum í dag er fyrirsögn með stríðsletri: ,,Pólitísk aðför” þar er viðtal við Guðjón Hjörleifsson (þögg og bidds úr Vmey from ðí clan of honkítonk Johnsen) þar sem honum finnst vegið að sér í fjölmiðlum og umfjöllun um málið ósanngjörn.

Fréttamaðurinn reynir að hjálpa þessu greyi með því að rekja forsögu málsins á mjög hlutdrægan máta (ergo frá sjónarhorni Guðjóns). Þessir tilburðir virðast þó einungis varpa enn skýrara ljósi á aulahátt þingmannsins í þessu máli.

Hvað er þá málið? Jú, eins og Guðjón lét hafa eftir sér í sjónvarpsfréttum í vikunni, þá lánaði hann kennitölu sína í brask með hlutafé sem hann borgaði aldrei. Guðjón og hómíz létu bóka að stonfé þeirra væri að fullu greitt (þó þeir væru ekki búnir að borga krónu).

Síðan þegar upp komst um málið svarar Guðjón út í hött og segist bara hafa lánað kennitölu sína og þetta komi sér ekkert við???

Mjög göfugt og ábyrgðarfullt svar af þingmanninum!

Guðjón braut lög og viðurkenndi það sjálfur í Fréttablaðinu en er mjög ósáttur að blaðið hafi orðað það á þann máta (ergo sagði sannleikann).

Guðjón segir í Blaðinu í dag að hann hafi talið sig vera gera rétt og ef lögin hafa eitthvað á móti gjörðum hans, þá þurfi einfaldlega að breyta lögunum!!!

Kræst!
Minnir þetta nokkuð á svör Hr. Johnsen frá Höfðabóli hér um árið?

Hanne, Emiliana og Björk

Er þá Emilíana undir áhrifum frá Hanne Hukkelberg sem er þá aftur undir áhrifum frá Björk? Eða er Emilíana bara undir áhrifum frá Björk?

Hanne Hukkelberg er a.m.kúl. Já ég veit, hún er norsk.

E.S. Afsakið fjarveruna, ég er nöbbla búnað verað gera doldið.

E.E.S. Þetta er uppáhaldsið mitt, mun betra en P.P.S. Guð blessi evrópska efnahagssvæðið!

E.E.E.S. Nei þetta eru ekki evrópsk efnahagssamtök eistneskra sjómanna heldur spurning hvert og hvort fólk sé almennt að skoða Netið hans Gore í sumarsins sólskinsbirtu? Loksins! Já loksins ertu komin sem sveipar gyllir dal og hól!

Jósef WALKS

Sonurinn gengur …hann gengur …halelúja bróðir sæll, hann gengur!

Þetta var ógeðslega fyndið: hann hóf tilburðina á miðvikudag. Stóð við hliðina á mér og sá síðan eitthvað spennandi á borðinu í um 2m fjarlægð. Skundaði yfir kíkti á það. Síðan þegar hann var hálfnaður til baka varð hann svo hissa á sjálfum sér að hann hálf roðnaði og leit undrandi á pabba sinn sem var líkt og klappstýra á hliðarlínunni hlæjandi, hoppandi, skppandi og baðandi út höndum á meðan sungið var ,,duglegur, duuuglegur …duuuglegur flott hjá þér!”

Síðan þá hefur hann allur verið að færast í aukana. Byrjar könnunarleiðangra venjulega á smá göngu, færist síðan full langt upp á skaftið og reynir að hlaupa, dettur, undrast, dæsir og skríður svo á leiðarenda.

Allt að gerast í oflofinu.