Monthly Archive for August, 2006

250 bestu IMDB-myndir allra tíma

Þegar þið hafið ekkert að gera eða viljið slæpast í vinnunni eða skólanum, þá er gaman að dunda sér við að strika út af þessum lista yfir 250 bestu myndir allra tíma samkvæmt IMDB.com.

Moi:
twofifty.org

Uppgvötvun?

Það er kannski ekki gott að semja ljóð í excel.

Óþekkti hermaðurinn

Hvað hét hann aftur?

Þú ert bara að dylgja, nefndu eitt dæmi, nefndu bara eitt dæmi!

  • Hvernig tókst Svandísi Svavarsdóttur að láta Sigurð Kára rústa sér í sjónvarpskappræðum?
  • Í sjónvarpskappræðum um framgang ríkisstjórnarinnar í Kárahnjúkamálinu!
  • Hvernig tókst Svandísi Svavarsdóttur ekki að nefna eitt dæmi um yfirgang Dóra og Dabba? Svona fyrst hún var að minnast á það yfir höfuð.
    • manni dettur nú í hug eitthvað frumvarp um fjölmiðla?
    • já svo var annað um eftirlaun Dabba og Dóra!
    • var ekki eitthvað umdeilt þetta með Írak?
    • jú svo voru þeir eitthvað að stússa með vatnið!
    • osfrv osfrv
    • eitt dæmi - EITT!
  • Merkilegt að grúttapa umræðum um mál þar sem ríkisstjórnin er með allt á hælunum!
  • Annars, þá er það þessi rökræðukúnst Sigurðar Kára og félaga orðin ofsalega þreytt. En hann má eiga það hann gjörsigraði þennan debatt.