Monthly Archive for September, 2006

Plötusala

Á forsíðu Viðskiptablaðsins í gær er spáð í yfirvofandi árlegt hljómplötustríð. Það vakti athygli mína að árið 2001 (svona uþb er Napstermenningin var að ryðja sér til rúms) var plötusala á Íslandi: 312þús plötur, eða rúmlega plata á mann!

Hvernig haldið þið að þróunin hafi verið síðan þá? Uppávið eða niðrávið? Nú höfum við þurft að hlusta á útgefendur væla í nokkur ár, salan hlýtur að hafa hrapað -ekki satt?

Nei, reyndar þá voru seldir 823.000 titlar í fyrra (2005) og spáð talsverðri aukningu í ár. Það þýðir þá tæplega þrjár plötur á hvern Íslending. Það er ekki nema 270% aukning á 5 árum, ég skil vel að útgefendur séu svekktir!

Er ég að skilja þetta rétt?

Ég er búinn að þurfa að horfa á viðtalið við Geir í Kastljósinu nokkrum sinnum í dag -ég er bara svona tregur. Og ég er enn að reyna að skilja.

Ég er þó búinn að fatta eftirfarandi:

  • Geir náði besta samningi í heimi.
  • Það var bara hreinlega ekki hægt að ná betri samningi en þetta.
  • Ástæðan? Jú vinstristjórnin 1989 (fyrir tæpum 20 árum) samdi svo hrikalega af sér að það var engin leið fyrir ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins næstu 16 árin til að laga málið. Er það ekki annars rétt?
  • Framferði ríkisstjórna síðustu 16 ára hefur verið með öllu fullkomið.

Hvað var það sem vinstri stjórnin gerði? Jú hún gaf leyfi fyrir nýrri vatnsveitu á herstöðinni.

Hvað gerir ,,hægri” stjórnin? Jú, hún nagar í pilsfaldinn á kananum í 16 ár. Nagar og nagar þar til ekkert er eftir og samningastaða okkar ömurleg.

Og nú þegar herinn er farinn og við sitjum uppi með draslið, hreinsun, niðurrif og svo uppbyggingu á svæðinu heldur ,,hægri” stjórnin áfram að naga í faldinn á kananum.

Bæjarstjórinn í Keflavík kemur fram og segist vera mjög mjög ánægður með þetta allt.

Enda besti samningur í heimi.

Atvinnumál í Reykjanesbæ eru enn í uppnámi og ríkisstjórnin hefur ekkert tjáð sig um þau mál. Enda búin að vera upptekin að semja.

Varnir landsins eru nú á vitorði tveggja manna. Jú og hvorugur þeirra er utanríkisráðherra.

Eins gott að leyniþjónusta Björns Bjarna standi sig í að verja þá. Við myndum ekki vilja að eitthvað hendi …þá gætum við þurft að semja upp á nýtt?

Er Jón Sigurðs ekki örugglega faldur einhverstaðar? Undisclosed location? Vonandi eru hafa þeir vit á að vera aldrei á sama stað á sama tíma.

Mikið er ég glaður að leyniþjónustan og leynivarnirnar verja mig fyrir leyndri ógn leyndra aðila. Ég sef miklu betur.

ATH: Geir verður stundakennari í samningatækni við HR eftir jól. Tjékkið endilega á því.

Ég treysti Ómari líka

Word!

Var að spá í hvort það væri ekki töff að gera stuttermabol með mynd af Ómari og áletruninni ,,ég treysti Ómari” eða eitthvað álíka sem stuðningsyfirlýsing við aðgerðir kappa.

Ómar er ótrúlega hugaður einstaklingur og hefur risið þvílíkt í áliti hjá mér síðustu daga. Hann er eiginlega bara orðin hetjan mín!!!

Ég skora á Magga og vini mína í UJ að gera þennan bol -verið einu skrefi á undan VG! Ég skal kaupa fyrsta eintakið.

People (not) ready

Í morgun hófst People ready ráðstefna Microsoft á Íslandi með miklum bravör. Þeir stjórnendur sem ég veit að sóttu trúboðið áttu varla orð til að lýsa hörmungunum.

Morguninn byrjaði með einhverjum Dale Carnegie ræðumanni sem hæpaði People ready fyrir ráðstefnugestum svo um munaði. Síðan þegar átti að fara að sýna tæknina virkaði ekki nokkur skapaður hlutur. Þegar salurinn var nærri tæmdur og haugur afsakanna hafði ringt yfir salinn sögðu Microsoft menn ,,já þetta virkaði rosa vel í gærkvöld!”

Ég er að sækja þessa ráðstefnu á morgun, verður fróðlegt að sjá hvort áframhald verður á hörmungum heimsveldisins?