Á mánudag fer ég til Riga. Svona gengur og gerist. Hef aldrei áður komið til Lettlands. Ég reyndi að fá ráð hjá vinum og vandamönnum. Sendi út póst með fyrirspurninni:
„Er að fara til Riga?
Er það skynsamlegt?
Any tips?“
Pósturinn var sendur á þá sem ég vissi að höfðu farið til borgarinnar og svörin létu ekki á sér standa (ekkert hefur verið átt við textann):
Riga er eins og Hofsós, bara aðeins grárri. Mér skylst að það hafi ýmislegt breyst til batnaðar síðan ég var þarna fyrir nokkrum árum og borgin verði vestrænni með hverjum deginum. Hvort það er svo kostur skal ég ekki meta.
Svo kom næsta bréf:
Það er búð sem er í hliðargötu við K. Barona (aðalgötuna) sem ég mæli með.. hún er opin allan sólarhringinn og mjög hress í alla staði… ég man því miður ekki hvað hún heitir, né hvar hún er.
Götumarkaðurinn niðrí bæ er ofmetinn. Fridays í miðbænum er mjög góður - mæli með að þú biðjir um óskalag með Selmu - they’ll know what you mean!
OG síðan kom þetta ágæta bréf:
Á laugardeginum létu við mynda okkur með virkalega ógeðslegu hvítu hyski sem var að mótmæla kynvillu og kynvillingum. Mikil læti og drama þegar villingarnir komu út úr kirkju einni. Löggur með hunda, kylfur og byssur.
Ég týndi myndavélinni minni í Riga en fann hana aftur daginn eftir.
Annars man ég ekki eftir einhverju einu umfram annað sem þú ættir að tjékka á
Skiljanlega er ég orðinn bæði spenntur og riglaður. Borgin fær fádæma steiktar undirtektir -er það gott?