Umhverfismál í Kryddsíldinni:
Formaður Sjálfstæðisflokksins: Kárahnjúkar eru staðreynd og það þýðir ekkert að tala um það en það verða engar fleiri stíflur með þeim hætti …við þurfum að fara að hlusta á fólkið í landinu!
Formaður Framsóknar: Stalínísk stóriðjustefna hætti fyrir löngu …árið 2003!!!
Bjútí!
Það er Alcan á Íslandi sem vonar að árið verði þér gjöfult og ál-risult.
Það er Frjáslyndi flokkurinn sem vonar að árið verði þér gjöfult og rosalega rasískt gott.
Það er Saddam Hussein sem vonar að árið verði ykkur …nei bíddu …hann óskar ykkur ekki nokkurs skapaðs hlutar, hann er död!
Ég vona hinsvegar að árið verði ykkur gott og aðeins minna geðveikt en 2006.
Jú ég fékk margar hugvitsamar og heilsusamlegar hrærivélar í jólagjöf en furðulegust allra er þó spindillinn af DVD diskum sem barst mér frá danska heimsveldinu með um 80GB af jazzi. Þetta er lofsamlega æðislegt og ótrúlega ólöglegt allt í senn en ég ætla þó ekki að segja til sakamannsins enda hefur hann flúið land …ti l DaNm erk U r …uss ekki segja. Hverjum hefði dottið í hug? Ég get hlustað sæll til æviloka, þvílík snilld.