Monthly Archive for February, 2007

Pétur Blöndal og neyslustýringin

Heyrði ég rétt í kvöldfréttum, var frjálshyggjumaðurinn Pétur Blöndal að skamma Íslendinga fyrir óhóflega lántöku? Er lausn frjálshyggjunnar við okurtöxtum bankanna bara neyslustýring?

Svarið sem skattpíndur almúginn fær frá formanni efnahags- og viðskiptanefndar er: þetta er ykkur sjálfum að kenna, þið takið svo mikið af lánum! (vantar bara að hann missi út úr sér „fíflin ykkar“)

Það er ekkert að hagstjórninni hjá ríkisstjórninni, ó nei nei elskan mín góða. Þetta er hún Bibba í Breiðholtinu og yfirdráttalánin hennar sem halda vöxtunum uppi.

Það eru ekki óhóflega miklar ríkisframkvæmdir á mesta þensluskeiði Íslandssögunnar …óneineinei. Og það voru engin mistök heldur gerð við innleiðingu 90% húsnæðislána …neinei …elskan mín góða.

Fréttastjórinn

Hvað ætli hann Auðunn Georg sé að gera í dag?

Nei, ég var nú bara svona að spá!

Fokking lýðheilsustöð maður

Ég er að reyna að standa mig í blótbindindinu, reyna að vera fyrirmyndarborgari og gleðja Umferðastofu. Ég verð bara svo fokking þunglyndur þegar ég hugsa um þessa helvítis samgönguáætlun.

Svo er það þessi andskotans Lýðheilsustöð. Sjitt. Hvað er málið með þetta fólk? Hverjir halda þeir eiginlega að þeir séu? Hver gerði þá að foreldrum mínum? Björn Bjarna? Siv?

Í hádegisfréttum RÚV í dag var viðtal við forstöðumann Lýðheilsustöðvar sem var að gagnrýna matarskattslækkunina á þeim forsendum að súkkulaðikex og gosdrykkir lækkuðu eitthvað aðeins meira en grænmeti og kjöt.

Má ég biðja einhvern að segja þessu fólki að láta mig í friði? Hættið þessari óhóflegu neyslu- og þjóðfélagsstýringu. Djíh.

Þessi umræða er á svo miklum villigötum að ég veit eiginlega ekki hvar maður ætti að byrja?

Það að þjóðin sé að borða óhollari mat, gosdrykki og feitan skyndibitamat hefur miklu meira með samfélagsgerð okkar og gildismat að gera en einhver fáein prósent í vörugjöldum og virðisauka.

Horfið á vinnuvikuna, horfið á þann litla tíma sem fjölskyldan eyðir saman, þann litla tíma sem foreldrar hafa til að elda, þann mikla tíma sem börn og unglingar eru ein heima, nú eða á einhverri stofnun (les: leik- og grunnskóli.)

Það er rót vandans.

AÐ hækka vörugjöld á gosdrykkjum mun hafa jafn mikil áhrif á neyslu þeirra drykkja eins og hækkun á nálum mun hafa á neyslu heróíns.

Ódýrar nálar og/eða sprautur stuðla ekki að sprautufíklum.

Afsakið hvað ég varð ofur-dramatískur. Þetta fer bara svo ofsalega í taugarnar á mér. Ég held ég verði að hætta núna, ég finn hvað ég hef mikla þörf fyrir að blóta. Og það er einhver auglýsingaherferð í gangi núna sem er að segja mér að passa hvað ég segi á Netinu!!! Er það kannski Lýðheilsustöð sem stendur fyrir því?

Samgöngubakþankar

Ég skellti uppúr þegar ég las bakþankana hans Gumma Steingríms í morgun.

Svo grét ég.

Kímdi og hló smá meira.

Og fór síðan aftur að gráta.

Í greininni talar hann m.a. um þá 380 MILLJARÐA sem er verið að lofa í samgöngur næstu 12 árin. 380.000.000.000 krónur. Af þessari fjársummu fer fátt eitt í samgönguúrbætur á höfuðborgarsvæðinu.

Hvernig er það komst Sundabraut inn á þessa samgönguáætlun? Eða er það kannski R-listanum að kenna að hún er ekki með? Það hlýtur að vera?

Hvað með Hlíðarfót (göng í gegn um Öskjuhlíð) svo það sé nú meira en ein leið úr Mið- og Vesturbæ Reykjavíkur út á land (Kópavog, Hafnarfjörð og hitt allt). Sjálfsagt R-listinn líka sem ber ábyrgð á því.

En hvað þá með svona framsæknar og útópískar hugmyndir eins og hjólreiðastíga eða betri almenningssamgöngur? …R-listinn? Einhver?

Jæja, það er amk gott að Umferðastofa haldi áfram að banna okkur að blóta. Við eigum svo sannarlega eftir að eiga erfiða tíma næstu 12 árin í umferðinni. Þökk sé Stulla BÖ.

Já og hvernig er það, hefur einhvertíma í sögu íslenska lýðveldisins verið Samgönguráðherra sem ekki var af landsbyggðinni? Ég man bara eftir dreifurum í því embætti.

Hvernig sem næstu kosningar fara, þá finnst mér það siðferðilega skylda stjórnmálamanna að setja ekki enn einn dreifarann í þetta embætti.

Hvernig yrði þetta í vinstristjórn Samfylkingar og VG? Yrði Kristján Möller kannski samgönguráðherra? Eða Jón Bjarnason?

Það er líka eitt annað smámál sem stoppar alltaf hjá dreifara-samgönguráðherra og það er einn lítill flugböllur í Vatnsmýrinni.

Reyndar þá hefur minn flokkur oft talað fyrir því að fá ráðherra úr öðrum ranni en þingflokknum. Ég býð mig fram í Samgönguráðherrann. Annars, þá má Gummi fá bitann. Nú eða Ágúst Ólafur eða Árni Páll eða Steinunn eða Jóhanna eða Róbert Marshall. Eða Ögmundur eða Kolla Halldórs eða Kata Jak?
Hvernig væri það?