Monthly Archive for March, 2007

Lára.is on fire

Mæli með nýjasta pistlinum hennar Láru.is, segir allt sem segja þarf (og brandarinn með blómvöndinn er ókeypis!)

Grænn í gegn

Íslandshreyfingin er eini flokkurinn sem er grænn í gegn, segir Ómar.
Er ekki óþarfi að vísa með svo beinum hætti til reynsluleysis frambjóðenda?

Mistök við prentun Morgunblaðsins

Það áttu sér stað hvimleið mistök við prentun Morgunblaðsins í nótt, vitlausir Staksteinar prentuðust óvart í blaðið. Ritstjórn vill koma því á framfæri við lesendur að þessi útgáfa af staksteinum var bara grín hjá ritstjóranum, auðvitað átti ekki að hæla Samfylkingunni fyrir nokkurn skapaðan hlut.

Þeir lesendur sem hafa þurft að þola miska vegna þessa eru hér með beðnir afsökunar, þetta mun vonandi ekki endurtaka sig. Lesendur geta þó treyst því að á morgun verða ,,gömlu góðu” staksteinarnir aftur á dagskrá -og auðvitað verður Ingibjörg Sólrún í aðalhlutverki eins og alla aðra föstudaga!

Vængjað: Heiðar Austmann

,,Mig langar ótrúlega mikið að fara til Jamaíka eða Kúbu eða jafnvel í Karíbahafið” Heiðar Austmann í Blaðinu 16.mars 2007.