Monthly Archive for April, 2007

Samfó

Sökum bloggleysis síðasta mánaðar eða svo hefur mér gjörsamlega mistekist að benda á uppáhalds vefinn minn um þessar mundir Samfó.is

Ekki nóg með að Samfó sé langtum skemmtilegri linkavefur en B2 og 69, þá er hann gjörsamlega laus við allt klám og inniheldur líka gríðarlegt magn af áróðri sem er nauðsynlegur landi og lýð.

Á Samfó eru komnar líka voðalega skemmtilegar myndir frá voðalega skemmtilega UJK-fundinum á föstudag (flokkað undir töff!) Það er voðalega gaman að vera Samfó og vera til og vera töff eins og ég, því ég er Samfó og ég er töff (ætli það sé ráðlegt að loka á komment við þessa færslu?)

Auglýsingar UJ 2003

Í vikunni fékk ég til baka gamla tölvu sem hafði verið í láni hjá flokknum í nokkur ár. Eitthvað átti ég á gögnum á þeirri tölvu m.a. fann ég eftirfarandi auglýsingu sem ég hafði komið í stafrænt form hér um árið. Svona auglýstum við árið 2003, það hefur lítið breytst og auglýsingin mætti alveg rúlla í þessari kosningabaráttu líka. Mæ först JúTúb.

Tímamót

Fréttir af andláti mínu eru stórlega ýktar. Fréttir af tímabundinni bilun í uppfærslukerfinu góða eiga þó við einhver rök að styðjast. Ég sé að lesendahópurinn er orðinn úrillur af biðinni og farinn að hrópa og heimta á torgum úti, því var gripið til þess ráðs að laga gallagripinn nú undir hádegi.

Þetta er mikill tímamótadagur í lífi mínu. Jú, uppfærslukerfið er komið í lag en þetta er líka fyrsti dagurinn í ein þrjú ár sem ég er ekki formaður UJ í Kópavogi.

Aðalfundur UJK var s.s. í gær. Mætingin og stemmingin á fundinum í gær fóru fram úr mínum björtustu björtustu vonum. Ég stýrði fundinum en Katrín Júl og Guðríður voru heiðursgestir og ræðumenn kvöldsins.

Katrín flutti frábæra ræðu um verkefni nýrrar ríkisstjórnar jafnaðarmanna. Guðríður flutti ekki síður góða ræðu um gildi jafnaðarstefnunnar og mikilvægi ungliðahreyfingarinnar en hefði kannski sleppa því að nefna aldur minn svona oft!!!

Það var troðfullt í búlunni okkar í Hamraborg og eftir „hefðbundin aðalfundarstörf“ hófst hörku-partí þar sem Sprengjuhöllin og stórhljómsveitin Suðsuðvestur tróðu upp en hún er skipuð harmonikkuleikaranum Guðmundi Steingrímssyni og gítarleikaranum Róberti Marshall. Þeir drengir sérhæfa sig í lögum Kiss, Simon og Garfúnkel.

Það er einlæg skoðun mín eftir leik gærkvöldsins að „I was made for loving you“ hafi upprunalega verið samið með nikkuna í huga. Þetta small eins og flís við rass.

Sprengjuhallardrengir voru líka í hörku stuði og mér finnst þeir jafnvel betri órafmagnaðir.

- 0 -

Minn pólitíski ferill hófst þegar ég álpaðist inn á fund hjá UJK fyrir rúmum þremur árum. Á þeim tíma hefur mikið gerst. Ég sagði frá þessu í ræðu minni í gær og hvatti ungt fólk til að gefa kost á sér til trúnaðarstarfa innan flokksins. Ég er talandi dæmi um að flokkurinn er opinn öllum og treystir ungu fólki til ábyrgðarstarfa. Það þarf ekki annað en að horfa á ræðumenn og skemmtikrafta gærkvöldsins: Katrínu, Guðríði, Guðmund og Róbert til að sjá hvert ég er að fara. Þá eru ónefndir Ágúst Ólafur, varaformaður flokksins og Björgvin G, oddviti í Suðurkjördæmi. Samfylkingin er öflugasti málsvari ungs fólks í landinu og við treystum ungu fólki.

Það er gott að fara frá góðu búi. Fundurinn var sjálfsagt sá best-heppnaði og fjölsóttasti í sögu félagsins og mér líst afar vel á þá stjórn sem nú tekur við keflinu. Að öðrum ólöstuðum þá hef ég miklar væntingar til nýs formanns. Arna Huld er prímusmótor og snillingur sem ég veit að á eftir að halda áfram að byggja upp og treysta félagið okkar.