Monthly Archive for June, 2007

Bæjarfulltrúinn Jens

Varavarabærjarfulltrúinn ég var með óvænta innkomu á bæjarstjórnarfund í gær. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sit þar fund og var upplifunin öll hin fróðlegasta.

Bæjarstjórinn svaraði flestum fyrirspurnum minnihlutans annaðhvort með orðunum ,,þið eruð á móti öllum framförum” eða ,,þið hafið greinilega farið öfugu megin framúr í morgun.”

Ég hef ekki tölu á því hve oft Gunnar lét þau orð falla í gær. Ég veit ekki hvort þetta séu hefðbundin svör frá bæjarstjóra en mér þykir þetta heldur ódýrt og ómálefnalegt þvaður.

Ég skil ekki afhverju Gunnar þarf að vera með svona mikið skítkast? Af hverju getur ekki svarað málefnalegum fyrirspurnum með málefnalegum rökum?

Kannski er hann upptekinn við annað eða bara latur og nennir ekki að kynna sér málin?

Allavega hefur hann ekki haft fyrir því að uppfæra skítkast sitt þannig að það henti nýju stjórnarmynstri á landsvísu.

Það hefur verið sérstakt baráttumál hjá mér í atvinnu- og upplýsinganefnd að gera upptökur af fundum bæjarstjórnar aðgengilegar á vef Kópavogsbæjar. Ég hlakka til þegar það kemst í framkvæmd, þá geta bæjarbúar hlustað á samskipti minni- og meirihluta. Ég vara þó viðkvæmar sálir við þegar sá dimmraddaði rúllar í pontu.

Seðlabankastjórapirringur

OK! Ég er búinn að eiga aðeins of mörg samtöl við fólk sem telur það réttlætanlegt og bara OK að fyrrverandi forsætisráðherrar séu ágætis Seðlabankastjórar, einvörðungu vegna setu þeirra í forsætisráðuneytinu og reynslu þeirra af stjórnmálum.

Myndi einhver segja að Siv Friðleifsdóttir væri fær heilaskurðlæknir? Ég meina hún var nú einusinni heilbrigðisráðherra?

Ætli Sturla Böðvarsson sé góður gröfumaður? Hann var nú Samgönguráðherra í langan tíma.

Ætli Jónína Bjartmarz sé góð að veiða rjúpur? Hún var nú Umhverfisráðherra.

Ætli Árni Matthísen sé góður endurskoðandi? Varla.

Af hverju eru þá fyrrverandi forsætisráðherrar góðir hagfræðingar? Er hagfræði eitthvað auðveldari að læra en rjúpnaveiði eða endurskoðun?

Hagfræðingar allra landa sameinist …þetta gengur ekki lengur!

Bloggið

Fyrir nokkru las ég skruddu sem hét Blog. Hún var jú merkilegt nokk um bloggið og hvernig miðillinn væri að breyta upplýsingaöflun og hegðun netverja. Bókin var nokkuð miðuð á Bandaríkin og þá sérstaklega forsetakosningarnar 2004. Höfundur vildi meina að úrslit þeirra hafi ráðist í „The Blogosphere“. Það verður svo sennilegt hlutverk stjórnmálafræðinga í framtíðinni að afsanna þá kenningu.

Ég hef verið að velta fyrir mér blogg-byltingunni hérlendis, hvaða áhrif hún hafði á síðustu sveitarstjórnar- og alþingiskosningar? Við fyrstu sýn virðast þau all nokkur. En hvernig mælir maður svona lagað? Innkoma Moggans skipti væntanlega sköpum? Þar sem víðlesnasti fréttavefur landsins fór markvisst að flétta, hampa og auglýsa bloggfærslur við hverja frétt, auk þess sem bloggfærslur fóru að fá ágætt pláss í hinum prentaða miðli.

Bloggið virðist líka orðið mjög skoðanamyndandi í dægurþrasi hversdagsins, t.d. er deila Egils Helgasonar við fyrrverandi/núverandi vinnuveitanda sinn dæmi þar sem bloggið hefur leitt umræðuna og mótað almenningsálitið.

Risamiðillinn 365 nær ekki að stjórna umræðunni sem hefur farið um bloggið, þeirra helsta vörn felst í því að gera Egil tortryggilegan og reyna að ala á öfund meðal kolleika hans í blaðamannastétt með því að gera launamál Egils að einhverju aðalatriði. Hugsanlega til að móta umræðuna í bloggheimi sér í hag?

Í þessu samhengi hef verið að velta fyrir mér eftirfarandi:

  • Hvernig ætli fjölmiðlamálið hefði þróast (í bloggheimum) ef það væri í hámæli núna?
  • Er ritstjórnarlegu sjálfstæði hugsanlega náð með blogginu?

Fólk sækir sér fréttir og fróðleik í auknu mæli á bloggið og áhrif hina gömlu miðla þverra.

Á sama tíma hlýtur maður að velta fyrir sér stöðu ,,gömlu” vefmiðlanna og vefritanna. Á dögunum hætti múrinn.is göngu sinni eftir 7 ár. Múrinn var nokkurskonar prótótýpa fyrir íslensk vefrit og margir hermdu. Á þeim tíma sem vefritið var kóngurinn. Le roi est mort. Vive le roi? Flestir múrarar eru bloggarar í dag. Bloggið er hinn nýi kóngur.

Það verður áhugavert að halda áfram að fylgjast með þróuninni. Ætli vefritin hætti alveg? Hvað með síður ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna? Og hvernig munu fyrirtækjasíður þróast í framtíðinni?

Bloggbyltingin er bara rétt að byrja.

Tveggja!

Þokkalega tveggja!

Maðurinn er þokkalega tveggja! Búnað eignast mótorhjól, sólgleraugu og spæderman-derhúfu. Respect!