Monthly Archive for July, 2007

Ruslaborgin

Í sumarblíðu gærdagsins ákvað smáfjölskyldan að skunda í hjarta höfuðborgarinnar, sleikja sólina og spísa góðan mat í hádeginu.

Austurvöllur var valinn en þó ekki fyrr búið var að koma við á Serrano og kaupa nokkra litla asna (ATH!) til að borða í blíðunni.

Mikið afskaplega var smá-asninn góður en sorphaugurinn sem áður hét Austurvöllur eyðilagði lítt eitt matarlystina.

Er Austurvöllur ekki hjarta miðborgarinnar: miðstöð stjórnmála, kristni, kaffidrykkju, hótelreksturs, súlu- og símstöðva hér í landi?

Austurvöllur er líka um 100m frá Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Gamli(g)óði-Villi vinnur.

Var það ekki einmitt helsta kosningamál Gamla(g)óða-Villa að hreinsa borgina sem var svo ógeðsleg eftir valdatíma R-listans? Var hreinsun borgarinnar kannski bara bundin við Breiðholtið, nánar tiltekið ein undirgöng í Breiðholtinu?

Austurvöllur var a.m.k. morandi í sígarettustubbum, glerbrotum, umbúðum, ílátum, drykkjarföngum o.s.frv. Ég fékk það á tilfinninguna að hér hefði ekki verið hreinsað í háa herrans tíð (les: síðan Steinunn Valdís lét af embætti.)

Í dag fórum við síðan í Nauthólsvík og þar var sama sagan, rusl út um allt.

Ég veit að miðborg Reykjavíkur og Nauthólsvíkin eru ekki jafn fjölskylduvænir staðir og Breiðholtið, enda allt morandi í grænfriðungum og spilakössum þar um slóðir - en - Kæri Gamli(g)óði-Villi gætir þú séð sóma þinn í því að senda hreinsunardeildina a.m.k. einu sinni í mánuði á þessa fjölsóttu staði?

_________________
ATH!: hvert er íslenska heitið yfir burrito?
Burro er það ekki asni á spænsku og -it(o/a) smækkunarending? Spyr sá sem ekki veit.

.is

Fjölskyldan er komin heim eftir náðuga tíð í Prodi-landi. Við erum strax farin að sakna Ítalíu og tilbúin í frekari landvinninga!

Í morgun tók ég til við að lesa blaðahrúguna sem safnast hafði við bréfalúguna. Ég hætti eftir nokkur blöð, það virðist sem ekkert fréttnæmt gerist á Íslandi á sumrin og það er eiginlega alveg óþarfi að lesa blöðin.

Sem dæmi um þetta þá liggja hérna nokkur blöð við hliðina á tölvunni og forsíðufréttirnar eru t.d.

  • „Doddi gamli kominn heim á ný“ -hundur sem hafði verið týndur er kominn í leitirnar.
  • „Grasfrjóin snemma á ferð“ -þetta er klárlega forsíðufrétt!
  • „Leitar að stolinni kirkju“ -skrauti stolið úr garði í Hveragerði.
  • „Golf í góðviðrinu“ -það er nákvæmlega málið! Íslendingar eru bara í golfi og útilegum á sumrin. Það er eiginlega óþarfi að standa í fréttaflutningi.

Hjá Ríkisútvarpinu er þetta reyndar gósentíð fyrir héraðsfréttaritarana sem fá að senda inn eins mikið efni og þeir geta framleitt. Kartöfluuppskera í Þykkvabæ eru óvenjusnemma þetta árið osfrv.

Í bloggheimi er verið að ræða um framtíð fréttastofu Stöðvar 2. Er ekki bara viturlegt fyrir þá að hætta fréttaflutningi í júní, júlí og ágúst? Það ætti að spara nokkuð?

Póstkort frá Róm

Ciao!

Nú er dregur nærri lokum Ítalíureisu fjölskyldunnar varð hún (fyrir því óhappi) að nettengjast.

Við ferðuðumst til eilífu borgarinnar og komumst þá í smá net-spotta.

Bindindið hefur þó bara gert okkur (les: mér) gott. Og það væri sóun að byrja á miklu netvafstri hér í bæ! Því ætla ég að láta eftirfarandi póstkort frá deginum duga að sinni og skila kveðju frá okkur öllum til ykkar allra, ferðasagan verður skrifuð síðar (athugið þó „stórkostlega“ neðanmálstexta höfundar!)

Mæðgin við Tíber Feðgar við Palatino-innganginn Rómverskar rústir Rómverskar rústir Gyðjur og Gyðji? Hvað stendur þarna... Jósef Ýmir og mamma við botn Coloseum Jósef Ýmir og pabbi hjá Coloseum Jósef Ýmir hjá Coloseum Mussolini minnisvarðinn Túkall til Trevi Jóna hjá Trevi Uno grande! Una piccolo bierra! McGelateria! Alþýðutorgið! Villa Borghese Tjújú! Babúú Babúú! Stund milli svælu Táslubað