Í dag kemur Herðubreið úr prentun og fer í dreifingu í betri bókaverslanir höfuðborgarsvæðisins strax á morgun. Í tengslum við útgáfuna höfum við opnað vefinn herdubreid.is þar sem hægt er að lesa útdrætti úr nokkrum greinum og gerast áskrifandi að blaðinu góða.
Af mörgum góðum ummælum á síðunni hlýtur uppáhalds kvótið mitt hiklaust að vera úr greininni um Steingrím Joð:
„Þá tel ég reyndar að við getum með stolti sýnt fram á, að með því að slík álframleiðsla færi fram á Íslandi og orkan væri raforka, en ekki kol eða olía og að hér væru ýtrustu hreinsunartæki notuð drifin með raforku, þá væri hér um það bil eins lítil mengun við álframleiðslu og hægt væri að hugsa sér yfirleitt í heiminum. Og þá er það að sjálfsögðu jákvæð niðurstaða í stærra samhengi séð, að þetta sé gert hér en t.d. ekki annars staðar þar sem orkugjafarnir væru kol eða olía.“
Tjékkit.
Þið vissuð kannski ekki af því en stjórnvöld í Kína fylgjast mjög náið með þingkosningum í öðrum löndum.
Þetta gera þau til að leita að nýjum og byltingarkenndum leiðum í stjórnsýslu. Markmiðið er sem fyrr að níðast á mannréttindum og frelsi einstaklinga.
Það virðist sem formaður VG hafi veitt Kínverjum innblástur í vor, því þeir eru u.þ.b. að eignast sína eigin NETLÖGGU! Reyndar hefur Steingrímur Joð verið furðu lítið í fréttum í sumar -ætli hann hafi hjálpað til við þróun löggunnar?
Virtual police patrol China web
Í vikunni sat ég á spjalli við skáld sem rifjaði upp þá tíma er Mogginn var kóngur. Hann sagði sögur af því hve greiðan aðgang Matthías ritstjóri hafi haft af þingmönnum. Mér skildist að þá hafi nokkuð Murdochískt ástand ríkt á Íslandi. Þingmenn fóru til Matthíasar að biðja um gott veður fyrir prófkjör og kosningar.
Þá var Mogginn í Aðalstræti, í Moggahöllinni, steinsnar frá þinginu. Þá var Austurstræti sannkallaður bræðingur broddborgara, þing- blaða og bankamanna. Gullni þríhyrningurinn?
Mér skilst að Matthías hafi nærri því verið með vitalstíma í þinginu á þessum árum. Átt sinn stað í kaffistofu þingsins. Matthías var kóngur. Mogginn var kóngur. Það fór ekkert á milli mála.
Þessi orð skáldsins hafa setið í mér út vikuna. Nú er skeggrætt um stöðuna á fjölmiðlamarkaði. Sumum finnst hún skelfileg og að auðmenn hafi of mikið vald. Öðrum finnst fjórða valdið sinna illa upplýsinga- og aðhaldshlutverki sínu.
Fjölmiðlarnir og starfsumhverfi þeirra virðist síkvikt. Sviptingarnar í eignarhaldi, mannaráðningum og ritstjórnarstefnu eru þvílíkar að almenningur (les: ég) er í mesta basli með að fylgjast með. Hver er aftur fréttastjóri á Stöð 2 núna? En á Ríkisútvarpinu? Hver var fréttastjóri á Fréttablaðinu í fyrra? Hver er aðstoðarritstjóri á Mogganum núna? Úff.
Ljósvakamiðlarnir virðast vera í sífelldu byltingarástandi, það er endalaust verið að hrókera mönnum á RÚV og Stöð2.
Í prentinu stýrir Styrmir fyrrum ríkidæmi Matthíasar. Sumum finnst Styrmir búinn að ,,missaða” eða orðinn elliær og enn öðrum finnst hann eiga heima í gula húsinu við sundin. Ég veit ekki en kóngur er hann vart? Mogginn er fluttur upp í móa og gengisfellir sig daglega með sturluðum skrifum í leiðurum og staksteinum.
Er þá Fréttablaðið kóngurinn? Varla. Sjáum við þingmenn fyrir okkur fara á fund Þorsteins að biðja um gott verður í kosningum? Hófsamur f.v. skynsemispólitíkus sem fólki í öllum flokkum virðist líka vel við. Er hann kyndilberinn?
Það er gaman að pæla í íslenskum fjölmiðlum. Hraðinn og breytingar svo örar að eina leið mín til að fá einhvern skilning á þeim er að setja mig í spor sagnfræðings og skoða það sem liðið er. Matthías virðist hafa verið kóngur. Mogginn var kóngur. Eeen Le roi est mort …