Fyrirtækjasalan rekur vef þar sem hægt er að kaupa og selja fyrirtæki á, að mér þykir, frekar háu verði. Þetta eru til mikið sjoppur, hárgreiðslustofur, efnalaugar og pöbbar sem rúlla þarna í gegn.
Ég rak þó í rogastans þegar ég sá eftirfarandi auglýsingu:
LEIKSKÓLI
„Leikskóli í nýlegu húsnæði og með öllum leiktækjum úti í garði jafnt sem inni.Pláss er fyrir 56 börn og alltaf fullbókað.Auðvelt hefur verið að fá starfsfólk fram til þessa. Eigandinn er að ljúka Dokltorsprófi og selur þessvegna. Húsið er í mjög góðu standi enda nýlegt.Gott eldhús með vönduðum tækjum til allra eldunarstarfa.Biðlisti eftir plássum. Öll leyfi til staðar.KJörinn vettvangur fyrir einstaklinga þar sem eftirspurnin er langt fram úr framboði á plássum. Húsið er nýlegt og á mjög eftirsóttum og vinsælum stað þar sem það gerir ekkert nema hækka í verði og það mjög mikið.Nægt starfsfólk er til staðar og hefur alltaf verið.Einnig er hægt að nota húsið undir aðra starfsemi td. fyrir sérhópa, félagsheimili fyrir ýmsa hópa eins og Lions, Kiwanis stjórnmálaflokka og til fjölbreytilegra starfa.“
Þetta er magnað á svo margan hátt. Fyrir það fyrsta vissi ég ekki að leikskólar gætu gengið kaupum og sölum með þessum hætti. Ég hélt að bæjarfélögin gerðu samninga um rekstur við ákveðna aðila, við sölu yrði að endurskoða allt slíkt. Ég myndi a.m.k. vilja semja þannig að bæjarfélagið hefði ekkert um það að segja hverjir væru rekstrar- og uppeldisaðilar leikskólabarna.
Þetta hlýtur líka að vera eini leikskólinn í Kópavogi sem á hreinlega AUÐVELT með að fá starfsfólk.
Steininn tók þó endanlega úr í niðurlagi auglýsingarinnar að það væri hægt að nota húsið undir aðra starfsemi s.s. Lions, Kiwanis og stjórnmálaflokka.
Aftur, þá þykir mér fáránlegt að leikskólaverktaki geti rekið hvaða starfsemi í húsnæðinu sem honum lystir. Sem foreldri leikskólabarns hefði ég ekki mikinn áhuga á að leikskólinn væri nýttur undir skemmtanir ýmiskonar kallaklúbba og stjórnmálaflokka að skólastarfi loknu: Bjórkvöld hjá Ungum Framsóknarmönnum á leikskólanum Hvarfi? Þorrablót Lions verður haldið í leikskólanum Baugi?
Nei fjandakornið. Mér er spurn: er þetta eitthvað grín? Má þetta, í alvöru?