Monthly Archive for October, 2007

Flippy the Magnificent =D

Mér var bent á þetta stórfenglega atriði nú áðan:


Og nú líður mér vel!

Ó borg mín borg…

Mogginn vill meina að þetta hafi allt verið eitt alsherjar plott hjá Alfreð Þorsteinssyni!

Ég vil hinsvegar meina að þetta hafi allt verið eitt alsherjar plott hjá Ringo Starr.

Villi var einfaldlega of langdreginn og leiðinlegur fyrir Ringo og Reykvíkinga -þrátt fyrir að ég hafi haft mikla skemmtun af þessum farsa.

Sérstaka skemmtun hef ég haft af sjálfspyndingu Sjálfstæðisflokksins sem staglast á því að ræða „málefnalega um aðalatriði málsins!“

Þetta er ekkert svo flókið er það? Og Bingi sprengi ekki út af málefnum OR -er það?

Ómálefnalega útgáfan er þá að:
Binga var sýnd vanvirðing, Sjallarnir voru svo uppteknir við að sætta menn í eigin röðum að þeir gleymdu að tala við Binga, það hefur ítrekað komið fram. Binga sárnaði. Og sprengdi.

Málefnalega útgáfan er þá:
Sjálfstæðismaðurinn Guðlaugur Þór stofnaði dótturfyrirtæki OR, REI. Villa fannst það misjafnlega góð hugmynd eftir því hvaða Dagur var. Örðum borgarfulltrúum fannst það þá ömurleg hugmynd og málið allt mjög óSjálfstæðislegt.

Hafðu það Guðlaugur Þór, hafðu það!

Ef ég væri Guðlaugur Þór þá myndi ég áskilja mér rétt til að vera amk jafn sár og Bingi. Það getur vart verið ömurlegra hlutskipti en að þykja óSjálfstæðislegur Sjálfstæðismaður -eða hvað

Ómálefnalegt niðurlag
Ó já!

Bein útsending…

Hér að neðan er bein útsending frá lampa í stofunni minni:

For viewers outside my head: try this link.

Í öðrum fréttum, þá gerðist sá fáheyrði atburður í dag að það sást til Gumma Steingríms með bindi (í þingsal reyndar!) Sem betur fer var ég með „hágæðamyndavél“ á mér og náði að festa atburðinn í gegnum sjónvarp með Símanum, njótið:

Þessi færsla var í boði Sjónvarps Símans.