Monthly Archive for December, 2007

Ó

Það verður að segjast. Ég hef ekki mátt vera að þessu. Hef verið mjög upptekinn. Það komu smá jól fyrir mig. Matur. Og matur. Og þannig. Horfi fram á snautlega útreið í hinni 3. árlegu lestrarkeppni Jens og Jónu. Hef verið að reyna að rétta minn hlut. Það gengur ekki vel. Of mikið af mat og matarboðum sem komu fyrir mig. Á enn fimm bækur að hlið Jónu -getur einhver bent mér á mjög stuttar bækur, helst fimm, til aflestrar á morgun? Þetta lítur alls ekki vel út.

Huggun harmi gegn:

?

RÚVkrapp

Fyrirgefið og afsakið

Ég hef verið ögn á skjön. Vona það komi ekki að sök. Ég er að reyna að skilja þetta mál með Skaupið. Getur einhver útskýrt fyrir mér?

Er farið að troða Remax-auglýsingum inn í mitt Áramótaskaup Ríkisstjónvarpsins?

Þá þessa sömu stöð og rekin er fyrir skylduáskrift (flest)allra landsmanna?

Þá þessa sömu stöð er fær líka að vera á auglýsingamarkaði með öðrum?

Þá þessa sömu stöð og Björgúlfur (Bjöggi „mega-milli“) var að gefa hundraðamillur til innlenndrar dagskrárgerðar?

Þá þessa sömu stöð og nýlega var OooHáEff-vædd í hagræðingarskyni?

//

Hvernig er það -á að slá ÖLL vopn úr höndum þeirra sem þykir það góð hugmynd að rekja hér ríkisfjölmiðla með einhverju móti?

//

Er þetta gambítur? Gert til að vekja reiði?

Á þá ekki bara að selja allt draslið? Þegar Áramótaskaupið sekkur á sama plan og íslenski Bachelorinn:

„er Nizza-súkkulaðið bræddi hug þeirra og hjarta um leið og þau mættust í lostafullum kossi í miðjum Reykjanesbæ!“

Eða hvernig sem þetta nú var, er þá kannske betur einkavætt en heima setið?

Birkir JÓN

Hurðu, ég var að lesa þessa fínu færslu áðan hjá Birki Jón.

Samtímis, í öðru forriti kom þetta skeyti fljúgandi inn á skjá til mín:

Ég fór einu sinni í framboð, og flutti ræðu með Birki þegar hann var þriggja.
Og það var alveg á hreinu að hann bar af.
Og þegar hann svo á sviðið steig og ætlaði að gera allt vitlaust,
þá alveg óvart mig yfir leið, það kviknaði í svo ég lenti í þriðja sæti.
Það voru engin læti heldur bara kæti yfir þessu öllu saman.
Ég ætla að verða eins og Birkir JÓN, ég ætla að verð’eins og hann´(Úbeibebeibe)
Ég ætla að verð’einsog Birkir JÓN, ég ætlað verð’eins og hann.
Og þegar hann svo verður fullorðinn þá ætlar hann að fara bar´ í stjórnarandstöðu.
Rétt eftir að Nonni fíkur yfir hæðir.
Ég ætla að verða sá frægasti og syngja og dansa alveg eins og Birkir.
Og þegar hann eignast kærasta þá verður það sko gæji úr Vatnaskógi….
Ég ætla að verða eins og Birkir JÓN, ég ætla að verða eins og hann!!!

TILVILJUN? Ég veit það bara alls ekki en hann er alveg magnaður þessi Birkir Jón. Alveg.

Neyðarlínan get ég aðstoðað?

Þetta myndband er æðislegt! Upptökur af samskiptum fólks við neyðarlínuna í Bandaríkjunum. Næn-vonn-vonn, can æ help jú? Já ég er hérna inni í bílnum mínum, hann er rafmagnslaus og ég er föst inni í honum -getið þið aðstoðað mig? Hefur þú prófað að nota hurðarhúninn?


Real Funny 911 Calls - More amazing videos are a click away