“Auðvitað getur hæstvist Alþingi ekki staðið undir því til lengdar að láta misvitra túlkunarmenn velja það og hafna sem þingmenn eru að fjalla um,” sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu á Alþingi í gær þar sem hann lýsti þeirri skoðun að Alþingi ætti sjálft að stunda sjónvarpsdagskrárgerð með fréttum og umræðum um þingstörfin.
(heimild: eyjan.is)
Þetta er áhugavert innlegg hjá Árna. Ég sé fyrir mér að þessi ríkisrekna sjónvarps- eða útvarpsstöð gæti jafnvel flutt fréttir af fleiru en störfum Alþingis. Hún gæti sagt bæði innlendar- og erlendar fréttir. Við gætum jafnvel hugsað okkur einhverskonar fréttastofu?
Sjálfsagt væri bezt að mynda einhverskonar stofnun um fjölmiðlareksturinn? En hvað ætti að kalla slíka stöð? Ríkisútvarpið væri nokkuð smellið nafn á gripinn og hægt væri að nefna fréttstofuna þá Fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Já! Það er gott að Árni sé aftur kominn á þing. Sjálfstæðismenn allra landa sameinist.
—
PS ég sé síðan fyrir mér að eftir nokkur ár væri hægt að OHF-væða þetta svokallaða Ríkisútvarp, svo djöfuls kommúnistarnir komist ekki með puttana í reksturinn.