Í dag var sett í loftið smá fríkeypis nördaviðbót í Sjónvarpi Símans sem gerir öllum notendum kleift að horfa á nýjustu innlendu þætti RÚV, s.s. Silfur Egils, Kiljuna og Spaugstofuna þegar þeim hentar (e. on demand.)
Við höfum verið með flesta innlenda þætti Skjás Eins og bætum nú við bróðurpartinum af dagskrárgerð RÚV. Sem makka-notandi hefur ruv.is valdið mér nokkru hugarangri, eins góð og meiningin er nú á bak dagskrárupptökuna þar, hefur hún verið nærri ónýt í mínu OSX nærumhverfi. Þannig að nú hafa makka- og linuxnördar sjónvarpsþróunar komið til móts við þá sem vilja horfa á sjónvarpsupptökur RÚV í sjónvarpinu sínu -JEI!
Það er því einmanna pepper sem situr nú á mánudagskvöldi og horfir á nokkra gamla silfursþætti og kiljur meðan frúin er í verkefnavinnu í gömlu höllinni hans Styrmis.
PjéEss það þarf að endurræsa lykilinn til að fá nörda-viðbótina!
“Auðvitað getur hæstvist Alþingi ekki staðið undir því til lengdar að láta misvitra túlkunarmenn velja það og hafna sem þingmenn eru að fjalla um,” sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu á Alþingi í gær þar sem hann lýsti þeirri skoðun að Alþingi ætti sjálft að stunda sjónvarpsdagskrárgerð með fréttum og umræðum um þingstörfin.
(heimild: eyjan.is)
Þetta er áhugavert innlegg hjá Árna. Ég sé fyrir mér að þessi ríkisrekna sjónvarps- eða útvarpsstöð gæti jafnvel flutt fréttir af fleiru en störfum Alþingis. Hún gæti sagt bæði innlendar- og erlendar fréttir. Við gætum jafnvel hugsað okkur einhverskonar fréttastofu?
Sjálfsagt væri bezt að mynda einhverskonar stofnun um fjölmiðlareksturinn? En hvað ætti að kalla slíka stöð? Ríkisútvarpið væri nokkuð smellið nafn á gripinn og hægt væri að nefna fréttstofuna þá Fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Já! Það er gott að Árni sé aftur kominn á þing. Sjálfstæðismenn allra landa sameinist.
—
PS ég sé síðan fyrir mér að eftir nokkur ár væri hægt að OHF-væða þetta svokallaða Ríkisútvarp, svo djöfuls kommúnistarnir komist ekki með puttana í reksturinn.
Eins og margir foreldrar höfum við Jóna gaman af því að lita með barninu okkar. Í morgun þegar við feðgar vorum að lita þóttu mér myndirnar eitthvað svo andlausar og keim líkar. Hugurinn fór á flug og ég velti því fyrir mér hvort ég gæti ekki bara búið til mínar eigin litabókar-myndir fyrir Jósef Ýmir með nokkrum einföldum Photoshop-aðgerðum.
Eftir smá grams á Netinu sauð ég saman eftirfarandi aðferð, ég studdist að mestu við þessar leiðbeiningar sem er lauslega þýdd og stílfærð hér að neðan:
AÐ breyta ljósmynd í litabókarmynd
Fann til ljósmynd af syni mínum og opnaði í Photoshop.
Afritaði background layerinn. Er þá með Layer 1 og Background. Eyddi svo Background.
Vel svo Image > Adjustments > Desaturate. Þá verður myndin svarthvít.
Afrita Layer 1 með því að fara í Layer > New > Layer via Copy.
Nú er ég kominn með Layer 1 og Layer 2. Við munum vinna með Layer 2 héðan í frá.
Inverta Layer 2, með því að velja Image > Adjustments > Invert. Nú lítur myndin út eins og negatífa.
Í Layers valblaðinu breyti ég Layers Blend Mode úr NORMAL í COLOR DODGE. Við þetta verður myndin nærri hvít -en örvæntið eigi!
Set blur fílter á layerinn, í þessu tilfelli notaði ég Filter > Blur > Gaussian Blur. Þegar þú hakar við Preview með þennan fílter opinn fara Photoshop töfrarnir að gera vart við sig!
Niðurstaða:
Í þessu tilfelli fundust mér svörtu fletirnir aðeins of stórir þannig að ég kroppaði hana til svona:
Einföld og skemmtileg helgariðja fyrir tölvunörda-pabba og listrænan dreng!
Síðustu dagar hafa verið einkar upplífgandi. Fullt af fjöri alls staðar. Í vinnunni er ég að skoða Apple TV græju sem hefur einkar skemmtilegan YouTube API. Það hefur nýst mér vel í starfi, m.a. fann ég mjög gagnlega klippu, sjá hér að neðan:
Annars, þá er Apple-græjan lofandi, hlakka mjög til að sjá hvernig þetta mun líta út þegar myndbandaleigan er kominn inn. Vídjóleigu-markaðurinn skelfur þar Vestra. Óttast menn að Apple TV verði einhverskonar iPod fyrir sjónvarpið? Markaðshlutdeild Apple í tónlistarspilurum er þvílík og farsímahlutdeildin í ótrúlegum vexti. Milljón símar á 90 dögum! Hvað verður um vídjó-markaðinn ef Apple nær slíkri útbreiðslu? Hverfa DVD-tæki? Eða hverfa myndbandaleigur? Eða verða kannski bara jaðarstærð fyrir afa og ömmur? Erfitt að segja. Þó græjan sé að mörgu leyti góð, þá böggar það mig að ekki sé hægt að horfa á TV í Apple TV, HDMI-tengja-flakk er alltaf leiðinlegt. Ef þeir bæta sjónvarpsstuðning með PVR-möguleikum er græjan orðin frábær.